Nýja stúdentablaðið - 01.12.1962, Blaðsíða 5

Nýja stúdentablaðið - 01.12.1962, Blaðsíða 5
NÝJA STÚDENTABLAÐIÐ 5 sem Islandi hlýtur að stafa af of miklum tengslum við slíkt risaríki. Staða stúdenta í þjóðfélaginu verður ekki hátt metiií, meðan þeir hliðra sér hjá að ræða erfiðasta vandamálið, sem þjóðin hefur orðið að takast á við um iangan aldur. Enginn efast um, að ólýðræðislegir flokkar séu miklir bölvaldar og hættulegir hverju lýðríki. En því fer fjarri, að sú hætta sé meira mál fyrir Island, eins og sakir standa, en sú hætta, sem er á, að Islendingar tapi meira og minna sjálfstæði sínu vegna of náinna tengsla við EBE. Hver verður þá afstaða Islands til þeirra ríkjasam- steypa, sem innan fárra ára verða alls ráðandi í heimin- um? Aðalviðskipti okkar hafa fram til þessa verið bæði til austurs og vesturs, og er það styrkur að geta haft slík sambönd við þau ríki, sem hentast þykir að verzla við á hverjum tíma. Sjónarmið íslendinga hafa verið að leita markaða, þar sem þeir hafa verið hagkvæmastir, og á þeim grundvelli hafa þeir ekki bundið sig við ákveðnar blakkir eða við- skiptaheildir. Óneitanlega er þetta nauðsyn lítilli þjóð, sem ekki hefur allt of fjölbreytta útflutningsframleiðslu að bjóða. Ef ísland bindur sig of nánum böndum við EBE, tekur að sjálfsögðu fyrir slíka frjálsa markaðsleit og viðskipta- möguleika við hin fjölmörgu ríki utan bandalagsins. Þá eru sérstaklega höfð í huga þróunarlöndin, sem hljóta að bjóða upp á mikla möguleika í þessu efni. Þegar það er haft í huga, hvílíka stórbreytingu hugsan- leg innganga Islands í EBE hefur í för með sér, ekki að- eins viðskiptalega heldur og menningarlega, hljóta að vakna margar og áleitnar spurningar. Enginn getur neitað því, að Island er í vanda statt. Senn dregur að því, að það þarf að ákvarða sig og stöðu sína í þessum heimi stórblakka, sem líta á smáríki eins og ísland með augum efnahagsspekinga, sem meta gildi þess eftir þeim krónufjölda, sem það getur lagt í sjóði sameigin- legrar Vestur-Evrópu, eða eftir landfræðilegri og um leið hernaðarlegri staðsetningu og afstöðu til hinna blakkanna. Allt annað en auðurinn í sjó og á landi og aðstaðan til þess að nýta þessar auðlindir er einskis vert og léttvægt fundið á vogarskálum fjármálamanna í Briissel. Uppbyggingin í nýju blökkinni á að ganga hratt og ótt, svo að með þvingunum á að leggja hart að hverju ríki að liggja ekki á ónotuðum verðmætum. Það er athyglisvert í umræðum um EBE, að afstaða íslenzkra stjórnmálamanna til málsins er nú með allt öðr- um blæ en var fyrir ári. Nú liggur það ljósara fyrir, að aðild að bandalaginu er hættuleg sjálfstæðinu, í hverri mynd sem hún verður. Rætt er um sérstaka viðskipta- eða tollasamninga, en það er vitað mál, að vissir aðilar íslenzkir ■telja það allt of skammt gengið og vilja að minnsta kosti fá aukaaðild; liggur þá beint við að ætla, að hún geti þróazt upp í fulla aðild á nokkrum árum. En hver er afstaða almennings, Islendinga hvers og eins, til þessa stóra vandamáls? Stjórnmálaflokkar þeir, sem lengst hafa viljað ganga, hafa reynt að dylja málið og forðast, að það yrði allt of mikið til umræðu hér. Að þessu leyti er ólíkt að farið og í nágrannalöndunum, t. d. í Bretlandi, þar sem stöðugt er haldið uppi fræðslu um bandalagið fyrir almenning, bæði í blöðum og útvarpi. Utan dagblaðanna heyrist hér fátt annað um málið en það, sem hið „hlutlausa“ útvarp flytur úr löngum þingræðum leiðtoga flokkanna, sem eru allt annað en vel fallnar til að kalla á hlutlaust mat hins almenna hlustanda. Hér er eins og alltaf áður. Helztu hagsmuna- og sjálfstæð- ismálin eru lokuð niðrí leyniskúffu, og er aldrei talið tímabært að ræða þau, fyrr en ráðamenn eru búnir að skrifa undir pappíra erlendra valdhafa og allt er klappað og klárt. Svo er talað um snjalla lausn og slungna stjórn- málamennsku, en að þjóðin sjálf hafi átt beinan þátt í að móta stefnuna er af og frá. Þjóðaratkvæðagreiðsla má aldrei heyrast nefnd. Nú, þegar stúdentar í Háskóla Islands áttu þess kost að kynna efnahagsbandalagsmálið fyrir þjóðinni, er sama bremsan sett á. Málið á að vera hið stóra leyndarmál rík- isstjórnarinnar, og óábyrgir stúdentar megi ekki verða til þess að blaðra neitt um það eða flíka því á opinberum vett- vangi. Þeir eiga líka að taka þátt í feluleiknum. Aðalbaráttan snýst gegn kommúnismanum, og í það á allur dagurinn að fara. EBE-málið á að pukrast með í næt- urvinnu, eftirvinnu og í hjáverkum. Næturvinna gefur yf- irleitt miklu meira í aðra hönd, sjálfsagt líka í þessu. Íslendingum sem sjálfstæðri þjóð er ekki sýnt tilræði nú í fyrsta sinn. Ég ætla ekki að rekja neitt af því tagi hér, en vegna smæðar sinnar hefur þjóðin alltaf átt í vök að verjast fyrir þeirri skoðun erlendra stjórnmálamanna, að hér sé ekki gerlegt eða a. m. k. mjög erfitt að halda uppi sjálfstæðri þjóð með öllu því, sem til þarf. Þessu hafa innlendir höfðingjar á sumum tímum trúað, svo að þeir hafa gefið upp réttindi landsins í þeirri trú, að þjóðinni væri gagn að. Þjóðin sjálf hefur hins vegar ætíð fundið til skyldunnar að verja rétt sinn til landsins, þegar að honum hefur verið reitt, og sá vilji er enn í fullu fjöri hjá meginþorra þessar- ar þjóðar. Landsmenn hafa aldrei viljað sætta sig við það sjónarmið, að þeir gætu ekki einir ráðið hér öllu, og þeir viðurkenna 'heldur aldrei, að neinn hafi rétt til að skipa málum sínum aðrir en þeir. Nú segðu hagspekingar, að hér væru bornar fram úreltar og hjákátlegar kenningar. En deilurnar um EBE eru meira en staðtölur, sem stjórnmálamennirnir nota til að skýla sér með. Þeir hampa ekki því, sem lýtur að al- (Framh. á bls. 22.)

x

Nýja stúdentablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýja stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/608

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.