Nýja stúdentablaðið - 01.12.1962, Blaðsíða 20

Nýja stúdentablaðið - 01.12.1962, Blaðsíða 20
20 NÝJA STÚDENTABLAÐIÐ r L J Ó Ð B ROT Þeir segja að ég muni tortímast Græn þokan Iimir mínir tætast sundur léttum skrefum líkami minn brenna til ösku og blöðin þögul og dimm Það má vel vera rétt Þó er skilningur minn mjög takmarkaður Andvarans mýkt eins og silfrið Þeir tala um tortímingu; í hendinni tortímingu steins og rótar lófa og klæða Kom þessa nótt jurta og gangstétta eldurinn kvikur cldurinn snarkandi Ég get ekki skilið tortímingu sem er himinvíðtæk Nærveran lengi Hún sprengir sundur höfuð mitt þýð eins og þokan Trúræknir menn segja að guð sé alls staðar nólægur Niður við eyrun þó hann sjáist ekki flaksandi hárið Þannig hef ég fundið nærveru hins skelfilega þó ég sjái það ekki þó ég skilji það ekki og slóðin svo gljúp Heiðríkja milli skýja Þórir Ragnarsson Timburhús eitt og eitt stud. philol. Hugur minn fæst við hina cinfiildustu hluti v J SPJALLAÐ VIÐ LÆKNANEMA (Framh. af bls. 14.) Hver er svo að lokum lífsskoðun þín almennt? Stærsti þátturinn þar myndi líklega vera forlagatrúin. Það veitir okkur öryggi og róar okkur, ef við trúum því, að öll reynsla, sem við göngum í gegnum, sé fyrirfram ákveðin okkur til þroska og ávinnings. Kynni okkar af því vonda og einskis nýta eru nauðsynleg til þess að læra að þekkja og meta hið góða, þegar það birtist okkur. Sumir læra það of seint, aðrir aldrei. Yfirleitt held ég, að við séum allt of vanþakklát. Við bara heimtum og heimtum — eitthvað meira — án þess að gá nokkuð að því, sem við þegar höfum. Þegar við vöknum, finnst okkur sjálfsagt, að við eigum föt til að fara í, þegar við erum svöng, finnst okkur sjálfsagt, að við getum fengið nóg að borða. Þegar við eignumst börn, finnst okkur líka sjálfsagt, að þau séu heilbrigð og rétt sköpuð. Þannig mætti lengi telja. Þess vegna ættum við að beygja okkur í auðmýkt og þakka forsjóninni fyrir það, að við skulum eiga heilbrigða líkami og fá að draga andann. ----o----- Ég hef dúndrandi móral, þegar ég paufast út frá Ey- þóri, en stundi samt upp: Þökk fyrir teið. G.G, Starfsemi Vöku 1948 Hinn 18. febrúar 1948 hélt Landsmálafélagið Vaka samkomu. Auglýsingin hljóðaði svo: KVÖLDVAKA „Vaka“ heldur kvöldvöku í Oddfellow uppi miðvikudag 18. febr. kl. 8.30. Til skemmtunar: 1. RÆÐA: Sigurður Bjarnason. 2. SPILAGALDRAR: V. Nordahl sýnir og kennir. 3. KAPPDRYKKJA milli deilda háskólans. 4. KEFLADRÁTTUR milli norðanmanna og sunnan. 5. FRAMSÓKNARVIST. Stjórnin. Við bendum sagnfræðingum síðari kynslóða hér með á þessa auglýsingu til skýringar á ýmsum sér- kennum íslenzkra stjórnmálamanna um miðbik 20. A

x

Nýja stúdentablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýja stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/608

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.