Nýja stúdentablaðið - 01.12.1962, Blaðsíða 13

Nýja stúdentablaðið - 01.12.1962, Blaðsíða 13
NÝJA STÚDENTABLAÐIÐ 13 Magnús Kjartansson ritstjóri: Kúba og rómanska Ameríka Bandarísk stjórnarvöld hafa hótað heimsstyrjöld til þess að fá fjarlægð ,,árásarvopn“ á Kúbu, langdrægar eldflaugar og sprengj uþotur. Banda- ríkin hafa náð samningum um þetta efni og orðið að kaupa samningana því verði að heita Kúbustjórn grið- um; meðan þau fyrirheit halda gildi sínu búa Kúbubúar loksins við nokk- urt öryggi eftir að hafa búizt við innrás stórveldisins um tveggja ára skeið. Áróðursblöð Bandaríkjanna um heim allan halda því fram að með þessum samningum hafi risaveldið unnið frækilegan sigur á dvergrík- inu, því Kúbustjórn hafi ekki haft neitt minna í hyggju en að leggja undir sig meginlandið allt frá Argen- tínu til Alaska. Þessi staðhæfing er ekki eins hlægileg og hún kann að virðast. Maður þarf ekki að dveljast lengi á Kúbu til að finna að jafnt almenn- ingur sem forustumenn búast við þjóðfélagsbyltingum um gei-valla rómönsku Ameríku næstu árin. Þeir benda einnig á að veldi Bandaríkj- anna hvíli að verulegu leyti á arðráni auðhringanna í rómönsku Ameríku, bandarískur iðnaður sé háður auð- lindum og hráefnum á sunnanverðu meginlandinu og bandarísk lífskjör séu keypt því verði að alþýða manna í rómönsku Ameríku lifi skamnia sultarævi. Glati Bandaríkjamenn drottinvaldi sínu í rómönsku Amer- íku, verða þeir einnig að taka þjóð- félagsskipan sína til gagngerrar end- urskoðunar — og þá mun sósíalism- inn verða þeirra lausn ekki síður en okkar, segja Kúbumenn. Ef við fáum að starfa í friði, verður fordæmi okk- ar 200 milljónum manna í rómönsku Ameríku ómótstæðilegt fordæmi, og þá mun sagan sjálf verða bandarísku þjóðinni lærdómur, sem ekki verður undan vikizt. Með griðasamningunum hafa Bandaríkin heitið að tryggja það að Kúbumenn fái að starfi í friði um sinn. Um leið og hernaðarlegar eld- flaugastöðvar voru brotnar niður, voru treystar undirstöðurnar að eld- flaugastöðvum þjóðfélagsbyltingar- innar. Jafnframt því sem heitið var að fjarlægja hernaðarlegar sprengju- þotur, var sprengjuþotum sósíalism- ans tryggt stóraukið svigrúm. Enginn skilur átökin um Kúbu nema hann geri sér ljóst að um gerv- alla rómönsku Ameríku er sams kon- ar þjóðfélagsástand og var á eyland- inu fyrir byltinguna. Ofsi banda- rískra stjórnarvalda stafar ekki af því að þau hafa glatað völdum og auði á Kúbu, þótt sái’t sé, heldur fyrst og fremst af hinu, að þau ótt- ast að þær 200 milljónir manna, sem búa sunnan landamæranna, rísi einn- ig upp og taki örlögin í sínar hendur. Bandaríkin ætluðu að kollvarpa Kúbustjórn til þess að sanna öðrum Suður-Ameríkumönnum að bylting væri vonlaus, en valdamenn þeirra urðu í fyrra að horfa upp á algerar hrakfarir innrásarhersins; og í ár (Framh. á bls. 21.) ■ --izzsm Gagnbyltingarmenn að verki. Belgíska skipið La Coubre sprengt í Havana 1960.

x

Nýja stúdentablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýja stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/608

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.