Nýja stúdentablaðið - 01.12.1962, Blaðsíða 12

Nýja stúdentablaðið - 01.12.1962, Blaðsíða 12
12 NÝJA STÚDENTABLAÐIÐ friðarást þeirra sömu aðila, sem reynt höfðu með vopna- valdi að kæfa byltinguna í Sovétríkjunum og urðu allt þetta tímabil öðru hvoru að beita vopnavaldi til að halda niðri kúguðum nýlenduþjóðum. Kórónan á sigurför fasismans var svo hinn svokallaði Anti-Komintern-sáttmáli, sem Italía, Þýzkaland og Japan mynduðu með sér árið 1936: allir aðilar skuldbundu sig til að berjast með öllum tiltækilegum ráðum gegn hinum al- þjóðlega kommúnisma. 1 nafni þessa göfuga markmiðs hófu ofangreind lönd heimsstyrjöld fáeinum árum seinna, og mun ekki þörf að rekja þá sögu nánar. Andkommúnisminn veikti engu síður innan frá þær þjóðir, sem urðu að verjast ásókn fasistaríkjanna. Bezta dæmið um það er Tékkóslóvakía. Strax eftir valdatöku fasismans í Þýzkalandi var það ljóst, hvílík hætta steðjaði að Tékkóslóvakíu úr þeirri átt. Borgaraleg stjórnarvöld landsins settu allt sitt traust á vesturveldin og skeyttu engu aðvörunum kommúnista, sem sáu það fyrir, að þau myndu fyrr eða síðar svíkja og réðu því til að leita frekar styrks af Sovétríkjunum. Það fékkst reyndar framgengt, að vináttusamningur var gerður við Sovétríkin árið 1936, en hann varð lítið annað en pappírsplagg. Og svo mikil var kommúnistahræðsla tékkneskra ráðamanna, að þegar vesturveldin loks sviku landið í hendur Hitlers árið 1938, og Sovétríkin ein tjáðu sig reiðubúin að standa við skuld- bindingar sínar gagnvart Tékkóslóvakíu, var því boði hafn- að. Tékknesku borgarastéttinni stóð auðvitað stuggur af fleiru en Sovétríkjunum einum saman: hefði hún vopnað almenning til andstöðu gegn Þjóðverjum, voru allar líkur til þess, að það hefði í för með sér róttækari þjóðfélags- breytingar en hún vildi sætta sig við. Eftir síðari heimsstyrjöldina hefur andkommúnisminn leikið sama hlutverk og áður, aðeins í enn ríkari mæli. Sérstaklega er lærdómsríkt, hvernig honum hefur verið beitt gegn frelsishreyfingum nýlenduþjóðanna. Nýlendu- veldin skriðu saman í hið svokallaða Atlantshafsbandalag í nafni baráttunnar gegn kommúnismanum; meðlimir þess hafa síðan veitt hver öðrum beinan og óbeinan stuðning til að viðhalda völdum sínum í nýlendunum; og í hvert skipti sem komið hefur þar til vopnaviðskipta við innlend- ar frelsishreyfingar, hefur sú barátta verið háð undir fána andkommúnismans, alveg án tillit til þess, hversu mikil voru hin raunverulegu ítök kommúnista í viðkomandi landi. Afturhaldssamir franskir herforingjar og stjórn- málamenn réttlættu meira að segja Alsírstríðið með því, að þeir yrðu að berjast gegn hinum alþjóðlega kommún- isma (og er þó á allra vitorði, að kommúnistar höfðu hverfandi lítil áhrif á frelsishreyfinguna þar í landi). Og svipað er að segja um afturhaldssömustu fulltrúa nýlendu- stefnunnar í dag — fasistastjórnina í Suður-Afríku, Wel- ensky í Ródesíu, Portúgala í Angóla og Mósambík, lepp- stjórnina í Katanga: allir eru þeir að berjast gegn komm- únismanum. Það er býsna álitlegur félagsskapur, sem stúdentar hafa valið sér. Þegar hin gamla nýlendustefna reynist gjaldþrota og nauðsynlegt verður fyrir imperíalismann að grípa til nýrra aðferða til að viðhalda ítökum sínum (neokoloníalismi), fær andkommúnisminn nýtt hlutverk: „neokoloníalisminn" festir yfirleitt þeim mun betri rætur, sem ráðamenn við- komandi landa eru móttækilegri fyrir andkommúnískan áróður. Gott dæmi um þetta eru frönsku nýlendurnar fyrr- verandi í Afríku, þær þeirra, þar sem stjórnarvöldin hafa vakið á sér mesta athygli fyrir andkommúnisma og hvers kyns kúgunarráðstafanir gegn vinstri sinnuðum öflum innanlands, s. s. Senegal, Fílabeinsströndin og Franska Kongó; þær eru einnig háðar Frakklandi efnahagslega og sitja uppi með franskar herstöðvar. Að hinu leytinu er svo fordæmi Gíneu: þegar landið kaus sjálfstæði frekar en stjórnarskrá De Gaulles í atkvæðagreiðslunni 1958, ætluðu Frakkar að koma því á kné með því að slíta á augabragði öllum efnahagstengslum og kalla heim alla sérfræðinga og annað starfslið. Landið gat auðvitað ekki staðizt þetta áfall án hjálpar erlendis frá; sú hjálp kom frá sósíalísku ríkjunum og engir pólitískir fordómar meinuðu stjórninni að þiggja hana. Svipuð er reynsla Suður-Ameríku: það er kunnara en frá þurfi að segja, hversu oft „róttækir“ borgaralegir stjórn- málaflokkar hafa komizt þar til valda með loforðum um að tryggj a raunverulegt sjálfstæði og minnka eitthvað áhrifa- vald bandaríska imperíalismans. Þessi loforð hafa þeir svikið jafnskjótt og þeir höfðu hreiðrað um sig í valda- sessinum — síðustu dæmin um þetta eru Frondizi í Argen- tínu og Betancourt í Venezúela — og eftir seinni heims- styrjöldina a. m. k. hefur það ætíð verið andkommúnism- inn, sem notaður var til að afsaka svikin. Eina landið, þar sem ekki hefur verið látið sitja við orðin tóm, er Kúba. Byltingarstjórnin þar gerði sér frá upphafi grein fyrir hinu rétta eðli andkommúnismans og lét hann ekki aftra sér frá framkvæmdum. Fyrstu 10—15 árin eftir styrjöldina var það því fyrst og fremst frelsishreyfing nýlendu- og hálfnýlenduþjóða, sem andkommúnisminn beindist gegn. Nú er hins vegar nýtt atriði komið til sögunnar: hið margumrædda Efna- hagsbandalag. Mikill meirihluti þátttakendanna í þessu svonefnda bandalagi, núverandi og væntanlegra, lætur stjórnast af pólitískum hvötum: ætlunin er að styrkja sem mest einingu hins „frjálsa heims“ í barátt- unni við kommúnismann. Það er síður en svo, að ráðamenn bandalagsins fari nokkuð dult með þetta. En eini aðalinn, sem beinan hagnað hefur af þessu, er vestur-þýzka einok- unarauðvaldið; það ætlar sér nú að ná með friðsamlegum (Framh. á bls. 21.)

x

Nýja stúdentablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýja stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/608

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.