Nýja stúdentablaðið - 01.12.1962, Blaðsíða 18

Nýja stúdentablaðið - 01.12.1962, Blaðsíða 18
18 NÝJA STÚDENTABLAÐIÐ GUÐLAUGUR GUÐMUNDSSON, stud. mag.: Á þessu ári kom út skáldsaga eftir brezka rithöfundinn Aldous Huxley, sem hann nefnir „Island“. Þetta er dæmi- gerð cyjasaga, en jafnframt saga um sæluríki, og sýnir svo ekki verður um villzt, að Englendingar leggja enn rækt við þessa bókmenntagrein. Og raunar má með sanni segja, að söguformið hefur lítið breytzt frá því, er Thomas Moore reit Útópíu sína árið 1516. Huxley hefur ekki verið vinsæll höfundur hér á landi, og stafar það að miklu leyti af því, að eina bókin, sem hefur verið þýdd á íslenzku eftir hann, „Markmið og leið- ir“, er ekki til þess fallin að vekja áhuga. Aftur á móti hafa beztu skáldsögur hans, eins og „Point Counter Point“ og „Brave New World“ ekki verið þýddar á íslenzku. Þessi nýja skáldsaga Huxleys fjallar um sælueyju, sem hann nefnir hér Pala og á að vera einhvers staðar í Indó- nesíu. Þetta nafn leiðir reyndar hugann ósjálfrátt að eyj- unni Bali í Indónesíu. En hvers vegna velur hann eyju í hitabeltinu? Ég geri ráð fyrir, að hann sé að hugsa um hin fjölmörgu ríki, sem risið hafa upp í hitabeltislöndum heimsins. I skáldsögunni „Brave New World“ (1932) lýsir hann framtíðarþjóðfélaginu — en á mjög hrollvekjandi hátt. 1 því þjóðfélagi hafa vísindi og tækni tekið völdin, en mað- urinn sjálfur er leiksoppur hins þrautskipulagða vélheims. Þar verða börn til í tilraunastofum, og mannfólkið er flokkað niður, með mjög fullkomnum og vísindalegum uppeldisaðferðum í alfa-, beta-, delta-, gamma- og epsilon- fólk. — En í endurskoðaðri útgáfu af „Brave New World“, sem hann gaf út 1946, ritar hann formála, og þar segir hann, að skrifi hann síðar skáldsögu um framtíðarríki eða sæluríki, þá geti hann sýnt fram á, hvernig eigi að leysa mörg þau vandamál, sem virðast óleysanleg í „Brave new World“. Skáldsagan um eyjuna hefst, er aðalpersónan, hinn enski blaðamaður Will Farnaby, kemur til Pala. Verkefni hans er að greiða veg olíuhrings, sem vill ná undir sig ónytjuðum olíulindum Pala. Blaðamaðurinn verður smám saman svo hrifinn af þessu frábæra þjóðfélagi, að öll við- horf hans breytast, og hann bregzt húsbændum sínum. Sögunni lýkur, er stórveldið Rendang, sem stjórnað er af einræðisherranum Diba, leggur undir sig hið óvopnaða sæluríki. Fyrirmyndarþjóðfélag það, sem Huxley lýsir, er í raun- inni allnýstárlegt á mörgum sviðum. Svo virðist sem hann hafi safnað saman fjölmörgum vísindalegum og trúarleg- um tilgátum, og sumar þeirra eru allfurðulegar og jafnvel afkáralegar. Á 19. öld fékk þjóðhöfðingi eyjarinnar, Raja, skozkan lækni til Pala. Og þá hefst breytingin. Frumstæðu ætt- flokkaþjóðfélagi er gjörbreytt, og fyrirmyndirnar eru bæði vestrænar og austrænar. Þjóðhöfðingja þenna kalla þeir Gani]a-Raja (sbr. Okkar-Ford í „Brave New World“), og hefur hami skrifað bók, sem allir eyjarskeggjar lesa og nefnist: Athugaseiíidir um hvað er hvað. Þessi samsteypa vestrænna og austrænna hugmynda varð því undirstaða hins fullkomna þjóðfélags á Pala. Þar ríkir nokkurs konar sameignarskipulag. Þeir rækta vel landið sitt og allir hafa nóg, en til þess að svo megi vera hafa þeir orðið að tak- marka barneignir. Ibúarnir lifa ekki saman í fjölskyldum á stærð við okkar, heldur í stærri heildum, og samsvara þær um það bil 20 fjölskyldum. Þessi skipting minnir dá- lítið á kínversku kommúnuna, þótt undarlegt megi virðast. Á Pala getur hvert barn valið milli 20—30 foreldra. í uppeldismálum er Huxley langróttækastur, og er of langt mál að útskýra það nákvæmlega. Ein persóna bókar- innar segir á einum stað: „Til hvers eru drengir og stúlk- ur?“ Og hann svarar: „I Ameríku: Til þess að auka eftir- spurn eftir framleiðsluvörum. I Rússlandi: Til þess að (Framh. á bls. 22.)

x

Nýja stúdentablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýja stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/608

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.