Nýja stúdentablaðið - 01.12.1962, Side 9
NÝJA STÚDENTABLAÐIÐ
9
FRÁ ÍSLENZKUM STÚDENTUM ERLENDIS
Frú Frakklandi
Franska stúdentasambandið U. N. E. F.
U.N.E.F. er stofnað árið 1907 og er landssamband
franskra stúdentafélaga, sem ýmist starfa í öllum há-
skóladeildum sinnar borgar eða þá í einstökum deildum.
Fátt er frásagnarvert af starfsemi sambandsins til ársins
1946, en fram að þeim tíma hafði það enga ákveðna afstöðu
til þjóð- og menningarmála, og hagsmunabarátta sam-
bandsins var lítil sem engin. Aðalstarfsemi þess var að
halda góðgerðaskemmtanir til styrktar fátækum stúdent-
um. Starfaði það án alls tillits til landsmálanna og gerði sér
ekki grein fyrir því, hvað skólamálin eru nátengd lands-
málunum í heild og nauðsyn þess, að sambandið hafi
ákveðnar skoðanir um menningarmálin og setji þær fram
á hverjum tíma á skeleggan hátt.
Eftir heimsstyrjöldina síðari var á landsfundi í Gren-
oble 24. apríl 1946 tekin upp ný stefnuskrá, sem síðar átti
eftir að gjörbreyta sambandinu. En í heimsstyrjöldinni
hafði sambandið enga samstöðu haft með andspyrnuhreyf-
ingunni. Að vísu starfaði það aldrei beinlínis með Þjóðverj-
um, en það tók oft næsta vítaverða afstöðu, svo sem þegar
gefin voru út lög um að flytja stúdenta í nauðungarvinnu
til Þýzkalands. Enda þótt sambandið sjálft brygðist and-
spyrnuhreyfingunni á þessum erfiðu tímum, þá störfuðu
einstakir félagar af miklum eldmóði í henni og sérstaklega
stúdentafélagið í Lyon, en það voru einkum ráðamenn þess
félags, sem fengu samþykkta stefnuskrána í Grenoble
1946. Þessi stefnuskrá skilgreinir stúdentinn sem ungan
námsverkamann og ákveður réttindi hans og skyldur,
skyldur hans við þjóð sína og skyldur þjóðarinnar við
hann. Stefnuskráin er upphaf og undirstaða allrar hags-
munabaráttu U.N.E.F. til þessa dags. Hún ber með sér, að
hún er samin á umbrotatímum, örlát og framsýn. Að vísu
er orðalagið sums staðar úrelt eða ungæðislegt, en engu að
síður myndar hún hugmyndalegan grundvöll U.N.E.F. enn
þann dag í dag. Hún er í sjö greinum:
1. grein. Stúdentinn er ungur námsverkamaður.
Réttindi og skyldur stúdentsins sexn ungs manns.
2. gi-ein. Sem ungur maður á stúdentinn heimtingu á
séi-stakri félagslegri fyrirgreiðslu í andlegum, siðferðileg-
um og líkamlegum efnum.
Bræðingurinn tók upp nýja stefnu gagnvart stúdentum
í öðrum löndum: vinsamlegt samstarf við stúdenta, hvar
sem er í heiminum. 1 sami-æmi við það var stúdentaráð
aðili að báðum alþjóðasamtökum stúdenta: fullgildur aðili
að vestræna sambandinu COSEC og aukaaðili að IUS, sem
aðsetur hefur í Prag. Þetta fór feiknlega í taugarnar á
Vökumönnum, fulltrúum ,,lýðræðisins“, en árangurinn af
þriggja ái'a veru okkar í þessu stúdentasambandi varð sá,
að hér í Reykjavík var haldið heimsmeistaramót stúdenta
í skák 1957, mesta skákmót og í'aunar íþróttamót, sem
haldið hefur verið hérlendis. Það má segja Vökumönnum
til lofs, að í undirbúningi þess móts stóðu þeir sig með
afbi'igðum vel, og það er verulega gaman að geta nefnt
dæmi þess, að Vökumenn hafi frá upphafi haft skilning á
máli, sem bæði er stórt í sniðum og óvenjulegt.
-----Það er komið djúpt í flöskuna og ræðumannssvip-
urinn er horfinn af Jóni; hann er kominn með þennan
fræga milda svip, sem enginn getur sett upp nema Jón Bö.
Hann sezt klofvega á stólinn og otar fi'aman í mig fingr-
inum:
SKO — á þessum tíma var það einkenni félagsins og
hefur sennilega lengst af verið, að félagsmenn voru næst-
um eingöngu úr tveimur deildum skólans, heimspekideild
og læknadeild. Það er nefnilega þannig, að þeir, sem áhuga
hafa á húmanisma og framfai’amálum, hneigjast fremur
að okkar stefnu en hinir, sem búa sig undir að vafstra í
peningamálum alla ævi og gegna þjónustuhlutverki í þágu
kapítalsins, eins og t. d. lögfræðingar og viðskiptafræð-
ingar.
(Mér varð hugsað til Sigurðar lögmanns hér á undan.)
En segðu mér að lokum, Jón, hvernig ...
Þú varst að spyrja um málflutning hinna blaðanna, en
ég leyfði þér víst ekki að komast að. Það væri nefnilega
fróðlegt að bei’a saman Nýja stúdentablaðið og málgögn
hinna pólitísku félaganna í skólanum á þessum tíma og
kynna sér mismuninn á málflutningi. Á kappræðufundi í
háskólanum buðum við einu sinni Vökumönnum verðlaun,
ef þeir gætu fundið persónulegt níð í Nýja stúdentablaðinu,
en enginn vann þau verðlaun. Hins vegar gátu þeir ekki
gert okkur gagntilboð af skiljanlegum ástæðum.
Og Jón Bö brosir laundi’júgt.
----o----
Það er auðvelt að taka viðtal við sona mælskan mann.
Við lukum úr flöskunni í rólegheitunum og fengum okkur
seytt rúgbrauð. Alltaf er gott að sitja hjá Jóni. Það var
orðið framorðið, þegar ég flýtti mér út til að ná í strætó.
H.K.S.