Valur 25 ára - 11.05.1936, Blaðsíða 30
30
VALUR 25 ÁRA
1 9 1 1 — 1 9 3 6
Heimsókn KFUM’s Boldklub
1933.
Eftir HÓLMGEIR JÓNSSON.
Eftir utanför Vals árið 1931,
kom það til orða, að bjóða hing-
að heim erlendum knattspyrnu-
flokki. Fyrir valinu varð K.F.U.-
M.s Boldklub frá Kaupmanna-
höfn. Flokkurinn kom svo hing-
að laugardaginn 15. júlí að kvöldi
með e.s. Gullfossi. Félagar Vals
fjölmentu niðri á hafnarbakka
til þess að bjóða þá velkomna.
Við þetta tækifæri fluttu ræður
þeir séra Friðrik Friðriksson og
Ben. G. Wáge. Frá skipshlið var
haldið upp í hús K.F.U.M., en þar
fór móttökuhátiðin fram, og gest-
unum tilkynt niðurröðun vænt-
anlegra kappleika og dagskráin
að öðru leyti. Þaðan var haldið
til dvalarstaðar þeirra liér, sem
var Málleysingjaskólinn, og liöfðu
þeir alt húsið til umráða. Morg-
unverður var etinn í skólanum,
að öðru leyti voru þeir i fæði hjá
velunnurum Vals víðsvegar um
bæinn.
Sunnudaginn 16. júli bauð séra
Fr. Fr. flokknum suður í Kald-
ársel. Þar var fyrir hópur K.F.-
U.M.-manna úr Hafnarfirði, og
veittu þeir af rausn kaffi og
kökur. Síðan var nágrennið skoð-
að og að endingu farið i helli
mikinn, sem þar er í hrauninu.
Séra Friðrik sagði magnaða
draugasögu í myrkrinu, og voru
vist flestir fegnir að sjá dagsljós-
ið aftur.
Á mánudag var gestunum sýnt
það markverðasta í bænum, svo
sem nýi barnaskólinn, þvotta-
laugarnar, sundlaugarnar, alþing-
ishúsið o. fl. Um kvöldið var svo
fyrsti kappleikurinn, við Víking,
sem fór þannig, að Danirnir unnu
með 6—0.
Daginn eftir var farið til Þing-
valla i boði bæjarstjórnar Rvík-
ur. Að Lögbergi flutti sr. Fr. Fr.
erindi um Þingvöll og rakti sögu
staðarins í stuttu máli. Forseti
Í.S.Í. sagði einnig nokkur orð. Að
þvi loknu var ekið til Valhallar
og etinn þar miðdegisverður. Eft-
ir matinn var gengið um í ná-
grenninu. Þvi miður var veður
ekki sem ákjósanlegast: drungi
til fjalla, svo útsýnið var ekki
svo gott sem skyldi, en þrátt fyr-
ir það voru gestir vorir stórhrifn-
ir af fegurð og sérkennileik stað-
arins, og sögðu að liann yrði
þeim ógleymanlegur.
Miðvikudaginn 19. júli bauð
sendiherra Dana flokknum,
ásamt stjórn Vals, til miðdegis-
verðar á Hótel ísland. Þar voru
fluttar margar og snjallar ræður,
og var borðhaldið hið ánægjuleg-
asta í alla staði. Að hádegisverði
loknum var kaþólska kirkjan
skoðuð og úr turninum fengu
menn prýðilegt útsýni yfir borg-
ina. Síðar um daginn gengu gest-
ir vorir suður i kirkjugarð og
lögðu krans á leiði Jóns sál. Krist-
björnssonar, en sr. Fr. Fr. flutti
stutta bæn. Um kvöldið keptu
þeir við Fram og unnu þann leik
með 6—3.
Daginn eftir var flokknum svo
boðið að Álafossi, og var höfð-
inglega tekið af Sigurjóni Péturs-
syni, og veitingar ekki sparaðar.
Þorsteinn Einarsson og Jörgen
Þorhergsson sýndu íslenska glímu
og nemendur Iþróttaskólans sund
og dýfingar. Á eftir fengu flestir
sér bað i hinni ágætu sundlaug
Sigurjóns. Þaðan var lialdið sem
leið liggur að Reykjum, og voru
gestirnir undrandi yfir þeim ár-
angri, sem þar hefir náðst í jarð-
rækt. Um kvöldið buðu meðlim-
ir Danska íþróttafélagsins lönd-
um sinum til kaffidrykkju í liúsi
K.F.U.M. Margt var þar til skemt-
unar.
Föstudaginn 21. júli var þeim
sýnt listasafn Einars Jónssonar,
Að öðru leyti réðu þeir sér sjálf-
ir það sem eftir var dagsins, en
um kvöldið var kappleikur við
Val, sem vér töpuðum með 2—1.
Snemma á laugardagsmorgun
var lagt af stað með mótorhát
áleiðis í Vatnaskóg. Þegar þang-
að kom var þar fyrir fjöldi skóg-
armanna, sem tóku á móti okk-
ur og flokknum með mikilli
Frh. á bls. 32.
íslandsfarar K.F.U.M.s Boldklub.