Valur 25 ára - 11.05.1936, Blaðsíða 31
1 911 — 1 9 3 6
VALUR 25 ÁRA
31
Isafjarðarför III. flokks 1935
Eftir AXEL PORBJÖRNSSON.
Þriðjudaginn 23. júli sumarið
1935 fór III. fl. Vals með Es. Gull-
foss, til ísafjarðar. I ferðinni
voru 14 drengir á aldrinum 11—
14 ára, og fararstjóri. Það var
knattspyrnufél. Hörður á ísafirði,
sem hafði verið svo rausnarlegt,
að bjóða okkur.
Ferðin vestur gekk vel, lítið
um sjóveiki og ágætis veður. Við
komum til Isafjarðar um hádegi
þann 24. Þar tóku þeir á móti
okkur Karl Bjarnason og Jón Al-
berts, og var okkur skift niður á
heimili þau, sem við áttum að
dvelja á, meðan við vorum á ísa-
firði.
Þar sem flestir af okkur voru
þreyttir eftir ferðina, var lítið að-
hafst þennan fyrsta dag; þó fór-
um við um kvöldið að slcoða
völlinn, og leist okkur vel á hann.
Völlur þeirra Isfirðinga var áð-
ur fyr mjög ósléttur og slæmur,
en nú hafa þeir lagað hann afar
mikið. Mér var sagt, að öll vinna,
sem unnin hafði verið við hann
væri þegnskylduvinna, og er það
lofsverður áhugi, sem þar hefir
verið að verki. Fimtudaginn 25.
notuðum við til þess að skoða
bæinn. Um kveldið kl. 8 var kapp-
leikur. Þeim leik töpuðum við
með 3: 2. Leikurinn fór mjög vel
fram, en heldur þótti okkur Vals-
mönnum sárt að tapa, — en hvað
um það; Isfirðingarnir áttu alveg
eins skilið að vinna, þvi að leik-
ur þeirra og framkoma var í allr
staði hin besta. Um kvöldið var
okkur haldið samsæti á Hótel
Brúarfoss. Þar var kaffi drukkið
og ræður haldnar, og slcemtum
við okkur prýðilega.
Föstudaginn 25. júlí var farið
í skemtiferð inn i Tungudal. Auk
okkar Valsmanna voru með i
ferðinni Helgi Guðmundsson, for-
maður Harðar, og Ágúst Leós, og
margir drengir frá ísafirði. Á
leiðinni komum við í skíðaskála
þeirra Isfirðinga, og skoðulðum
hann. Hann er frekar lítill, en
mjög vistlegur. Eins og flestum
er kuimugt, er skíðaíþróttin uppá-
lialds-íþrótt ísfirðinga, og eiga
þeir marga góða skiðagarpa,
enda skilyrði mjög góð til skíða-
ferða þar. Á leiðinni heim kom-
um við i sumarhústað, sem Helgi
Guðmundsson á, og fengum við
þar kaffi og lcökur. Á meðan við
stóðum þarna við, skemtu nokkr-
ir isfirskir skátar okkur með
skátasöngvum. I hæinn komum
við kl. 6 um kvöldið, og hafði
ferð þessi verið i alla staði hin
besta.
Laugardagurinn 27. júli var
síðasti dagurinn okkar á Isafirði,
því daginn eftir áttum við að
leggja á stað heim. Veður var
frekar leiðinlegt þennan dag;
þó batnaði þegar á daginn leið.
Um kvöldið kl. 8 var háður síð-
ari kappleikurinn, og fór nú enn
ver en áður, því nú töpuðum við
með 2: 0. Heldur vorum við nú
súrir á svip, þegar við fórum út
af vellinum. En það var samt
ekki lengi; við vorum ánægðir
yfir því, að við, að allra dómi,
höfðum leikið vel og drengilega,
og það var okkur fyrir mestu.
Isfirsku drengirnir komu vel og
drengilega fram, eins og i fyrri
leiknum.
Um kvöldið var okkur svo
lialdið skilnaðarsamsæti á Hótel
Uppsalir. Fyrst var kaffisam-
drykkja, og voru margar ræður
haldnar. Siðan var dansað til kl.
3. — Þetta síðasta kvöld, sem við
áttum með okkar ísfirsku vinum,
var í alla staði liið ánægjuleg-
asta.
Sunnudagurinn 28. júlí rann
upp bjartur og fagur. Vera okk-
ar á ísafirði var nú að enda.
Um horð í Gullfoss áttu allir að
vera komnir kl. 1. Um leið og
skipið fór frá bryggjunni, hróp-
uðum við ferfalt liúrra fyrir Isa-
firði og ísfirðingum og árnuðum
þeim allra heilla, en ísfirsku vin-
irnir svöruðu með þvi að lirópa
ferfalt húrra fyrir Val.
Skipið leið hægt út fjörðinn;
Isafjörður fjarlægðist sjónum
okkar hægt og hægt. En eitt er
víst, að sú liugsun hefir áreiðan-
lega verið efst í hugum okkar
allra, að gaman hefði verið að
vera, þó ekki væri nema einn dag
lengur með kunningjunum á ísa-
firði.
Ferðin heim gekk ágætlega; við
komum til Reykjavikur um miðj-
an dag þann 29. júlí. Þessi ferð
okkar var í alla staði hin besta
og hefir áreiðanlega verið öllum,
sem þátt tóku í henni til gagns
og ánægju.
Eg vil að endingu þakka öll-
um þeim, sem gerðu dvöl okk-
ar á ísafirði svo ánægjulega, sem
hún var, og þá sérstaklega þeim
formanni Harðar, Helga Guð-
mundssyni, Karli Bjarnasyni og
Frh. á bls. 33.
III. flokkur 1934.