Valur 25 ára - 11.05.1936, Síða 36
36
VALUR 25 ÁRA
1911—1936
Tékkanna, enda unnu þeir með
4:1.
Ekki gátum við yfirgefið Dram-
men án þess að skoða pappírs-
verksmiðju, sem Norðmenn eiga
svo mikið af, og ennfremur
íþróttahöllina, sem er stór bygg-
ing við hlið íþróttavallanna.
Kl. 4 um daginn er ákveðið að
halda af stað til Osló. Jensrud
var kominn til þess að kveðja
okkur. Allir söknuðum við þess
að þurfa að skilja við hann. Hann
hafði reynst okkur sannur vinur,
meðan við dvöldum í Drammen,
og gefið okkur ráðleggingar við-
víkjandi dvöl okkar i Osló.
Eftir stundar ferð rennur lest-
in inn á járnbrautarstöðina 1
Osló. Þar var tekið á móti okk-
ur af mönnum frá Váleringen, og
Vilhj. Finsen, sem fylgja okkur
til hotelanna, er við skyldum búa
á. Þessi laugardagur var enginn
venjulegur dagur lijá Oslóbúum.
Það var byrjunin á miðsumar-
hátíðinni.
Sunnudagurinn rann upp. Við
áttum að keppa við Válerengen
kl. 3 um daginn. Hitinn er 34 stig!
Það bætti þó úr skák, að völlur-
inn var malarvöllur, og kunnum
við mun betur við okkur þar,
enda álitu blöðin, að jafntefli
hefði verið sanngjarnt og 2 mörk-
in „gefin“. Þó urðum við að sætta
okkur við 5: 3 ósigur.
Það var „Midsommerfest“ (St.
Hans kvöld). Alstaðar var líf og
fjör. Þó var þjóðlegustu skemt-
unina að liafa í „Bygdojs“. Var
þar saman kominn mikill mann-
fjöldi, á veitingastað einum und-
ir berum himni, sem lá alveg nið-
ur við logntæran Oslófjörðinn.
Meðfram öllum firðinum, svo
langt sem augað eygði, voru
tendruð bál. Þar á meðal eitt,
sem komið var fyrir á fleka, rétt
við veitingastaðinn. Það vaggaði
rólega á öldunum frá vélbátun-
um, er ösluðu með fólkið fram
og aftur, og varpaði ævintýra-
bjarma á fólkið, sjóinn og skóg-
inn. Stórfeldir flugeldar liðu upp
í loftið umhverfis fjörðinn og
settu sinn svip á kvöldið. Það til-
heyrði miðsumarkvöldinu.
Fleiri leikir liöfðu ekki verið
ákveðnir í Noregi, en ákveðið var
ða bíða eftir að landskappleikur
Norðmanna og Þjóðverja færi
fram 27. júní; enda vorum við
boðnir þangað af norska knatt-
spyrnusambandinu. Var þessi
tími notaður til að skoða það
merkilegasta, eftir því sem timi
vanst til. Með þvi fyrsta, sem við
Sveinn Björnsson
sendiherra.
skoðuðum í hinni fögru Osló-
borg, var hin fræga Holmenkol-
len-skíðastökkbraut. Þaðan er
ljómandi útsýni yfir Osló og Os-
lófjörðinn, með sínum mörgu
eyjum og kappsiglingasnekkjun-
um, sem liða i hlýjum sumar-
blænum fram og aftur, fyrir
þöndum seglum. Við heimsóttum
baðstaðina, og féll lífið þar vel.
Skip Amundsen’s „Fram“, og
þjóðm.injasafnið í Bygdoj veitti
okkur mikla skemtun og fróðleik.
Þar er kirkja, stafkirkja, og heil
kirkjusókn af húsum frá 11. og
12. öld, svipaðrar tegundar og
forfeður vorir notuðu og bjuggu
í, með tilheyrandi húsmunum.
Víkingaskipin, sem fundist
hafa í Noregi, voru þarna rétt hjá.
Þau fengu mann til að láta hug-
ann hvarfla til landnemanna og
víkinganna okkar, og maður
fyltist nýrri lotningu og aðdáun
fyrir þeim, þegar maður bar sam-
an farkostinn þá og nú. Einnig
var þar vinnustofa Ibsens, eins
og þegar hann skildi við hana,
þjóðþingssalur frá 1814 o. fl. —
Ef skrifa ætti nákvæma lýsingu
á safni þessu, yrði hún mörg
bindi.
Við skoðuðum skemtigarða,
íþróttavelli og minnismerki, svo
sem Vigelands monolith, sem á
að verða saga Noregs i myndum.
Það er 18 m. liátt, en er því mið-
ur ekki fullgert enn. Steinninn i
það var sóttur að landamærum
Svíþjóðar. Það er áætlað, að
verkið kosti, fullgert< 12 milj. kr.
Það hefir verið 5 ár i smíðum og
verður 4—5 ár enn.
Sundhöllina i Torvgatensbad
var okkur boðið að skoða, og
fengum við að reyna hana líka.
Ennfremur var okkur sýnd höll-
in hátt og lágt; það er mjög
merkileg bygging. Er rafmagn
notað þar til liitunar vatnsins, því
þeir liafa ekki lieitar uppsprett-
ur, eins og við. Bygging þessi
kostaði 6% milj. króna.
Vilhjálmur Finsen, sem liafði
verið okkur hjálplegur á ýmsan
liátt, bauð okkur heim til sín, og
dvöldum við þar lieilan eftir-
miðdag í góðu yfirlæti við veit-
ingar og fjörugar samræður.
Heimili þeirra hjóna og viðmót
í alla staði, gleymum við seint.
Nú er sá langþráði dagur lcom-
inn. Noregur og Þýzkaland keppa
á Ullevál. Leikurinn er vel leik-
inn og drengilegur af beggja
hálfu. Þjóðsöngvarnir eru leikn-
ir og fólkið tekur undir og syng-
ur, 20.000 þús. manns! Þýzk flug-
vél, alsett merkjum Þýzlcalands,
líður yfir völlinn í byrjun leiks.
Bending til Þjóðverjanna að
muna gamla Þýskaland, og eggj-
un! Þjóðverjarnir setja mark.
Kortér líður. Norðmenn jafna, og
þannig lauk þessum leik 1:1.
Fjórða jafnteflið í röð, milli þess-
araþjóða! Fyrir þeim Valsmönn-
um, sem voru boðsgestir Norska
knattspyrnusambandsins þennan
dag, stendur þessi leikur lengi
ljóslifandi.
Framh. á bls 42.