Melkorka - 01.06.1953, Page 3
MELKORKA
TÍMARIT KVENNA
Ritstjórn:
Nanna Ólafsdóttir, ReykjahlíÖ 12, Reykjavik, simi 3156 • Svafa Þórleifsdóttir, Ránárgötu 19, Reykjavik
Þóra Vigfúsdóttir, Þingholtsstrœti 27, Reykjavik, simi 5199
Útgefandi: Mál og Menning
Alþjóðaþing kvenna í Kaupmannahöfn
Dagana 5.—10. júní í sutnar verður haldið
heimsþing kvenna i Kaupmannahöfn. Þing
þetta er haldið á vegum Alþjóðasambands
lýðrœðissinnaðra kvenna og verður þriðja
alþjóðamótið, sem ALK gegngst fyrir.
Þetta þing munu sitja um 900 fulltrúar
frá 85 löndum, en að baki þessara fulltrúa
standa 135 milljónir kvenna af ýmsum stétt-
um, óliku þjóðerni og með mismunatidi
skoðanir i trúar- og þjóðfélagsmálum.
Þessir fulltrúar koma saman i sumar til
þess að rœða hin margvíslegu vandamál sin,
sem eru meðal annars: barátta fyrir jafn-
rétti kvenna, launajafnrétti, vinnujafnrétti,
bcettum lífskjörum og lífsöryggi barna og
mœðra og siðast. en ekki sízt barátta fyrir
heimsfriði.
Þetta þing er einn þýðingarmesti liður-
inn í baráttunni gegn hleypidómum og van-
þekkingu. Þarna mœtast konur frá austri og
vestri, konur frá Bandaríkjunum, konur frá
Vestur- og Austur-Evróþu, konur frá Afriku
og Suður-Ameríku, frá Kína og Ástraliu, frá
Indlandi og öðrum Austurlöndum.
Aukin samvinna og kynni kvenna um all-
an heim mun verða einn sterkasti hlekkur- •
inn i sameiningarfylkingu kvenna til ein-
huga baráttu gegn þeim styrjöldum sem nú
geisa og sameinaðri baráttu til tryggingar
varanlegs friðar — og sá friður mun vinnast
með þeim órjúfandi samtökum, sem óháð
eru þjóðalit og landamœrum.
Á þetta alþjóðaþing kvenna eru allar
konur velkomnar, hvaða trúar- eða stjórn-
málaskoðanir sem þœr hafa, hvort sem þcer
eru i einhverju stéttar- eða réttindafélagi
kvenna, eða i engum félagsskap, einungis ef
þær liafa áhuga á og vilja styðja þau mál,
sem þingið fjallar um.
Hvaða kve?ifélag sem er eða samök, þar
setn konur eru einnig félagar, geta sent full-
trúa á þetta þmg.
Stjór?? Mennmgar- og friðarsamtaka is-
lenzk?~a kvenna veitir allar ?iánari upplýs-
ingar.
Frá menningar- og friðarsamtökum kvenna.
melkoriía
35