Melkorka - 01.06.1953, Side 8
Matsalur i sambýlishúsi
Stokkhólmi. Margt fólk, sem aldrei hafði
hugsað sér að búa í sambýlishúsi, flutti
þangað vegna húsnæðisskorts. Hinn fagri
Lundagárd misheppnaðist t. d., þrátt fyrir
prýðilegt fyrirkomulag, af þeim ástæðum að
leigutakar, sem aðallega voru rosknar kon-
ur, sem lifðu af eftirlaunum, höfðu ekki
efni á eða tækifæri til að nýta sambýlisfyrir-
komulagið. Vöggustofunni var lokað, þjón-
ustufólkinu var sagt upp af því að það var
verklaust, veitingasalurinn var rekinn með
miklu tapi.
Fyrir einstæðar konur verður ódýrara að
búa í hinum sérstöku kvennahúsum, sem
mikið er af í Stokkhólmi. Flestar hinar eldri
konur njóta einhverrar hjálparstarfsemi, en
hin tvö nýtízku, mjög smekklega innrétt-
uðu sambýlishús fyrir konur, hafa engan
efnalegan eða andlegan bakhjarl.
Þá er til sambýlishús, þar sem búa nær
eingöngu karlmenn, Rálambshús. Þar eru
engar þjónustustúlkur og ekki koma þá
heldur upp neinar kvartanir um að kröft-
um þjónustuliðsins sé misboðið, eins og átti
sér stað í fjölskyldusambýlinu.
Stærsta sambýlishúsið er Marieberg með
225 íbúðir, flestar tveggjaherbergjaíbúðir.
Þar er matarskylda, þ. e. a. s. hverjum leigu-
taka er gert að borða 25 miðdagsverði í veit-
ingasalnum eða sækja sjálfur upp matinn.
Ágætasta fyrirkomulagið er það, að fólk-
ið sjálft geti ráðið því hve marga málsverði
það vill borða af mat sambýlishússins. Ef
veitingasalur hússins á að standa undir sér
verður annaðhvort að viðhafa matarskyldu
eða hafa hann jafnframt opinn öðrum en
leigutökum. Ein lausn er að hafa afmarkað-
an sal, þar sem fram er borið fyrir leigutaka
við hliðina á opinberum veitingasal. Bezta
tilhögunin er sjálfsagt sú, sem er í Jóns
Eiríkssonargötu, en þar er búr inni í íbúð-
inni og tækifæri fyrir þá sem gefnir eru fyr-
ir fjölmenni að fara niður í veitingasalinn.
Ef gert er ráð fyrir að opinber veitingasala
eigi sér stað í sambýlishúsi, verður húsið að
vera mjög miðsvæðis. Alviksgárden, sem er
langt frá miðbænum, hefur enga veitinga-
sölu, en hins vegar allsherjar eldameistara,
sem liefur á boðstólum tilbúinn mat. Hús-
mæður geta hringt frá vinnu sinni og beðið
um að viss skammtur sé látinn í matskáp-
inn þeirra, síðan geta þær sótt matinn þeg-
ar þeim bezt hentar. Mér sýnist Alviksgárd-
en mjög hentugur fyrir barnafjölskyldur,
því að umhverfis hann er ilmandi barrskóg-
ur.
Ekkert vinnuafl er eins ódýrt og eldliús-
verk húsmóðurinnar. Allt sem kemur í stað-
inn fyrir það lilýtur að verða dýrara. Einnig
sambýlishúsið. En ef húsmóðirin jrykist
geta stundað starf utan heimilisins, sem
færi henni mikinn persónulegan og efna-
legan hagnað, þá er kominn tími til að flytja
í sambýlishús, fyrr ekki.
Sambýlishús
40
MELKORICA