Melkorka - 01.06.1953, Blaðsíða 18
Athyglisvert menningarstarf
Sölu- og samkeppnissýning á íslenzkum
heimilisiðnaði og öðrum íslenzkum minja-
gripum, ætluðum sérstaklega erlendum
ferðamönnum, hefur staðið yfir undanfarið
í baðstofu Ferðaskrifstofu ríkisins. Til þess-
arar sýningar var meðal annars stofnað til
að fá sem víðast af landinu beztu gæðateg-
undir íslenzks ullarbands og voru veitt verð-
laun í því skyni. Fyrstu verðl. voru 500 kr.
Fyrir rösku ári hófst að tilhlutun Heim-
ilisiðnaðarfélags íslands markvíst starf fyrir
framleiðslu listræns heimilisiðnaðar. Á þess-
ari sýningu má sjá að farið hefur verið inn
á rétta braut. Þarna má sjá á ýmsum hlutum
liið margviðurkennda listhandbragð ís-
lenzkra kvenna eins og t. d. á hinum fögru
einbanda sjalhyrnum í íslenzkum sauðalit-
um, sem vekja sérstaka eftirtekt erlenda
ferðalangsins eins og ullarpeysurnar og
vettlingarnir. Vefnaður skipar þarna vegleg-
an sess og maður dáist að hlýrapilsum á
telpur sem sjást þarna í fögrum litum.
Margvíslegur tréskurður eftir íslenzkum
þjóðlegum fyrirmyndum, sem ekki hefur
sézt hér áður, eru smekklegir minjagripir,
sem ferðalangurinn getur valið á milli, eins
og t. d. sýrudrykkjar-
könnurnar, gömlu opnu
bátarnir, askar af: ýmsum
stærðum o. fl. Töskur og
veski úr selskinni minna
á að framtíðarferða-
mannalandið ísland ligg-
ur norðarlega á hnettin-
um og víravirkisnælurn-
ar og aðrir smíðagripir úr
Frú sigrún stcfdnsdóttir siIfri segja einnig sína
forstöðuliona íslenzhs SÖgU um þjóðina.
heimilisiðnaðar ÞeSSÍ SÖlu- Og Sam-
Arnheiður
Jónsdóttir
kennari,
formaður
Heimilis-
iðnaðarfélags m.A : ' rM'J.
Islands WKBg&SEí&aflSL • * ÆStKBlBfflKl
keppnissýning íslenzks heimilisiðnaðar ber
þess Ijósan vott að aðilar þeir sem standa að
sýningunni skilja að íslenzku minjagripirnir
sem ætlaðir eru ferðamönnum eru tákn þess
menningarstigs sem þjóðin stendur á og því
hefur verið hafið með sölusýningu þessari at-
hyglisvert menningarstarf sem er vonandi
upphaf þess að framleiðsla á drasli því, sem
selt var víðs vegar í verzlunum í Reykjavík á
styrjaldarárunum sem íslenzkir minjagripir,
verði bönnuðaðfulluogöllu.
Eins og að framan er sagt bera ótal hlutir
þarna vott um listrænt handbragð íslenzkra
kvenna og geta konur sem hagar eru í liönd-
um sent fyrirtækinu muni í umboðssölu eða
gefið sig fram til að vinna ullarhluti úr
bandi því sem íslenzkur heimilisiðnaður
leggur til.
Formaður Fleimilisiðnaðarfélags íslands
er frú Arnheiður Jónsdóttir kennari, og hef-
ur félagið ráðið frú Sigríði Stefánsdóttur
sem forstöðukonu fyrir íslenzkan lieimilis-
iðnað, sem var stofnaður að tilhlutun
Heimilisiðnaðarfélags íslands og Ferðaskrif-
stofunnar.
50
MELKORKA