Melkorka - 01.06.1953, Blaðsíða 21
vandasamasta sem enn er fram komin og er
hún ununarsamleg þegar vel tekst. Hún
kallast non-figurativ og er ekki á annarra
færi en hinna snjöllustu. Njótendum listar-
innar er hún engu vandaminni en þeim sem
hana skapaði.
Um nýtízku stefnu í myndlist liefur verið
skrifaður mikill þvættingur víða um heim,
afar spekingslega á yfirborði, jafn óskiljan-
legur menntuðum sem ómenntuðum,
myndvönum sem ómyndvönum, en mikið
hugaryndi iðkendum sínum og held ég þeir
byrli sér inn að þessi stíltegund hæfi þeim
hugarórum, sem þeir kalla ofar mannlegu
hyggjuviti, þessir bláturnar. Dautt dettur
þetta hjal um sjálft sig því heili vor manna
var gerður fyrir sannindi eins og augað fyr-
ir birtu. Sumra manna heilar eru reyndar
af vanefnum gerðir og auðvelt að afvega-
leiða þá. Og hver þekkir aðra eins afvega-
leiðslu eins og þá sem hinar ýmsu þjóðir
jarðarinnar hafa ratað í. Það er ljót saga.
Fáránlegast alls sem ég þekki er þó þessi
þvættingur er ég nefndi og nýtt er það.
Rökin fyrir því, hver eru þau.
Menn fyrirgefi mér þennan útúrdúr.
Þess væri að vænta að íslendingar, sem
fyrir ekki allmörgum árum áttu engan stól,
en sátu á koffortum eða bæli sínu, og ekki
borð nema tréplötu neglda undir gluggann,
kunni lítið á borð og stóla, en þá þykir
mér furðu gegna áhugi manna að eignast
þessa hluti og hafa þá sem forkostulegasta;
en þó finnst mér þurfa mikils átaks við svo
að við stöðnum ekki í heimilisprýðinni eins
og hún gerist sem stendur.
Heilbrigður maður
(lvelur i/3 hluta ævi sinnar í rúrainu.
Skilyrði þess, að manni líði vel, eru fyrst og fremst
þau að sængurfötin séu hrein, létt og hlý.
Fiður og dún úr sængurfötum þarf að þvo endrum
og eins, svo að þau hafi þessa ágætu kosti. Við gufu-
þvott og þyrlun fiðursins fær það „NÝTT LÍF“ um
leið og það sótthreinsast. Látið oss annast þetta og
þér munuð komast að raun um að fiðurhreinsun er
mikilsverð þjónusta, sem svarar tilkostnaði.
Hreinsun sængur kostar frá krónum 25,00—28,00, barnasængur frá krónum
15,00—18,00, koddar og púðar frá krónum 10,00.
Fiðurhreinsun
Hverfisgötu 52
melkorka
53