Melkorka - 01.06.1953, Page 24
--------------------------------\
I hverju af þessu, sem hér er talið
eru 100 hitaeiningar:
1 matskeið af smjöri
275 gr. af sítrónum
225 gr. af eplum
4 sykurmolum
1 þunnri sneið af svínasteik
1 konfektmola
5 brjóstsykursmolum
275 gr. af appelsínum
30 gr. af rúsínum
35 gr. af sveskjmn
840 gr. af salati
220 gr. af gulrófum
200 gr. af hieðkum
2 sneiðum af brauði
1 kartöflu (stórri)
100 gr. af nautasteik (bauta)
500 gr. af tómötum
400 gr. af bJómkáli
30 gr. af feitum osti
100 gr. af humri
115 gr. af rækjum
4 sardínum
1 rúnnstykki
Vi vínarbrauði
V.________________________________/
SUMARTÍZKAN I MOSKVU 1953
Erfitt mun flestum reynast að megra sig
með þessu móti, og skal vel gæta þess að
megrast ekki svo ört að af því liljótist
hrukkur í andliti og hirða vel hörundið og
fara oft í bað. Gott er að fá sér gufubað og
kalt steypibað að sundi loknu. Hreyfingar
þarfnast menn til að koma blóðrásinni í rétt
horf, til að stæla vöðvana sem áður voru
sokknir í spik. Og að lokinni megruninni
má ekki slaka á, heldur gefa gætur að hita-
einingum svo ekki reki í sama horf. Sér-
stakan varhug skyldi gjalda við sætindaáti
og kökum. Minnizt að enginn etur of marg-
ar hitaeiningar um lengri tíma sér að ó-
sekju.
Sex íslenzkar konur sitja Alþjóðaþing kvenna í
Kaupmannahöfn í júní
Eins og sagt hefur verið í blaðinu hér að framan
verður Alþjóðaþing kvenna liiið í Kaupmannahöfn dag-
ana frd 5.—10. júní og munu konur frd öllum löndum
heims streyma þangað sem fulltrúar og áheyrnarfull-
trúar.
Frá Islandi fara sex konur á þingið. Frá Menningar-
og friðarsamtökum íslenzkra kvenna fara María Þor-
steinsdóttir varaformaður félagsins og Guðrún Gísla-
dóttir, frá Mæðrafélaginu Sigríður Einarsdóttir frá
Munaðarnesi og Ragnheiður Möller og frá Kvenfélagi
sósíalista í Reykjavík Elín Guðmundsdóttir og Valgerð-
ur Gísladóttir.
Arið 1939 var annað Alþjóðaþing kvenna haldið i
Kaupmannahöfn og sálu það þing 7 konur frá Kven-
réttindafélagi íslands.
56
MELKORKA