Melkorka - 01.06.1953, Blaðsíða 29
gimsteina. Ég á grænan jaðehring og hvítan
jaðe — “
Eiginkonan greip fram í fyrir honum,
hún stóð fyrir utan dyrnar og hélt áfram að
senda ungu konunni tóninn. Hann flýtti sér
úr fötunum og dró teppin upp fyrir liöfuð.
Hann lá með andlitið við brióst hennar og
hvíslaði:
„Ég á hvítan jaðe —
Með hverjum deginum sem leið varð
hún gildari, þar til hún hefði getað rúmað
heila skeppu í kviðarholinu, þá fór gamla
fniin að hugsa um að ná í ljósmóður. Og
hún leyfði sér jafnvel að koma með marglitt
elni og fara að sauma á fitla barnið, þó að
einhverjir væru nærstaddir.
Loksins fór að halla hinu hræðilega heita
sumri, og allan sjötta mánuðinn var fjöl-
skyldan full eftirvæntingar. Með haustinu
komu svalari vindar. Og dag nokkurn náði
hugarrót heimilisfófksins hámarki. And-
rúmsloftið var mettað hrolfaukandi eftir-
væntingu, og einkum var húsbóndinn á nál-
um. Allan tímann gekk hann fram og aftur
um garðinn með stjörnufræðibók í hend-
inni, og svo var að sjá sem hann iærði eitt-
hvað utanað. „Tígrisdýrið er ríkjandi,“
tautaði liann æ ofan í æ. Stundum horfði
hann áhyggjufullur upp í einn gluggann, en
þaðan mátti greina hæglátt tal fjósmóður-
innar. Stundum horfði hann tii sólar, en
hún var hulin skýjum.
„Nokkuð að frétta?" spurði hann frú
Wang, sem stóð rétt innan við dyrnar.
Frú Wang kinkaði þegjandi kolli hvað
eftir annað og bætti svo við:
„Nú kemur það bráðum. Nú kemur það
bráðum.“
Þá greip hann aftur stjörnufræðibókina
og tók til að ganga fram og aftur um garð-
inn.
Þannig leið tíminn þangað til kvöldþok-
unni létti af jörðunni, og lampaljósin sáust
hér og þar eins og vorblóm. Þá fæddist barn-
ið — drengur. Rödd hans heyrðist, þegar
Heimilistækin
sem allir vilja eiga
Þvottavél ....................... kr. 4,390,00
Kæliskápur (7,6 kub.fet) ..... — 6,900,00
Hrærivél ....................... - 1,069,45
Eins árs ábyrgð á þvottavéluni.
Fimm ára ábyrgð á kæliskápum.
Alltaf birgðir varahluta.
Kynnið yður greiðsluskilmála hjá okktn.
Lítið í gluggana á Laugavegi 166.
ORKA
M
I-
^elkorka
61