Melkorka - 01.06.1957, Síða 16
HANNYRÐIR
Eftir Grethe Benediktsson
VOFFLUSAUMUR
„smock“ -saumur
Þessir saumar eru ekki sízt fallegir á krakkaföt og
telpukjóla, en það má líka nota þá t. d. á blússur og
náttkjóla á fullorðna. Auðveldast er að nota röndótt
eða köflótt efni, en einlitt efni útiieimtir sérstakan und-
Telpukjóll.
Smokksau mur.
irbúning. Sjáið uin að nota garn, sem litar ekki frá sér.
Bómullarefni og amagergarn er yfirleitt henttigast. Efn-
ið á að vera þrisvar sinnum breiðara en stykkið þegar
það er búið.
Saumað er í tveimur þáttum, fyrri þátturinn, rykk-
ingin, er dálítið leiðinlcgur, cn sá seinni, saumurinn
sjálfur, er skemmlilegur og fljótlegur. Þýðingarmikið er
að og efnið teygt langsum til þess að fellingarnar verði
að liggja nákvæmlega bver undir annarri; því verður að
nota málband, reglustiku og blýant á einlitt efni og
sctja punkta með jöfnu millibili, venjulega yí,—f sm„
og með 1—11/2 sm. milli raðanna. Notið langan tvinna-
spotta með sterkum bnút á endanum við rykkinguna,
stingið ofan í punktana og upp mitt á milli. Þegar búið
er að þræða allar raðirnar, eru þræðirnir dregnir fast
að og efnið teygt langsum til þess að fellingarnar verði
skarpar. Nú er losað um þræðina þangað til stykkið
hefur þá breidd, sem óskað er eftir.
Saumað er frá vinstri til hægri eða, réttara sagt, frá
sér; myndirnar sýna aðferðirnar. Almenn regla er að
taka í næstu fellingu við hvert spor, en með því kemsl
teygja í sauminn. í vöfflusaumi má láta þráðinn liggja
á réttunni milli raðanna, eins og sést á myndinni. Það
má nota margs konar spor að auki eins og t. d. greinar-
sporin á telpukjólnum á myndinni, en Jrá er auðvitað
saumað í venjulega átt, eins og sporið útheimtir.
48
MELKORKA