Melkorka - 01.09.1960, Blaðsíða 19

Melkorka - 01.09.1960, Blaðsíða 19
S M Æ L K I KONUR AFRÍKU l>au tíðindi gerðust um mánaðamótin júní-júlí að fimm ríki í Afríku lýstu yfir sjálfstæði sínu á fimm eða sex dögum. Það sýnir gleggst hvernig hinar lituðu þjóð- ir rísa upp hver af annarri og finna til máttar stns. Síðan fyrir sex árum að Alsírbúar hóftt sókn fyrir sjálf- stæði sínu hefur Afríka verið efsl á baugi í heimsfrétt- unum. í þessari frelsisbaráttu hafa hinar þeldökku kynsystur okkar margar hverjar getið scr ódauðlegan orðstír. Þær hafa setið í fangelsum, verið pyntaðar til að koma upp um samherja sína. reknar í útlegð frá börnum og fjölskyldu og dæmdar lil dauða. Ótal frá- sagnir eru til um hetjuskap þessara kvenna og fyrir hverja eina sem hverfur inn í fangelsin koma tíu í staðinn. Djamila Bouhired unga stúdínan frá Alsír, sem frakkar handtóku og pyntuðu vikuin saman og dæmdu til dauða, er eilt dæmi af mörgum, en aðeins bin sterka mótmælaalda sem reis í heiminum út af líf- látsdómi þessum bjargaði lífi hennar. Því er lialdið fram að 98o^ af blökkumannakonum séu ólæsar og hjátrú afskapleg. En á síðustu árum hafa risið upp merkar forustukon- ur meðal blökkukvenna sem krefjast mannréttinda á öllum sviðum fyrir kynsystur sínar og hafa hafizt handa til umbóta. A fjölmennu kvennaþingi sem haldið var í fyrra í Bamako í Vestur-Afríku ríkti andi hins nýja tíma. Konurnar strengdu þess heit að berjast fyrir sjálf- stæði og samvinnu meðal hinna óliku ættflokka Afríku, berjast gegn fjölkvæni og barnahjónaböndum, beita sér fyrir stofnun skóla og sjúkrahúsa, mannsæmandi íbúð- um og launajafnrétti. Kjörorð þingsins var friður, sam- vinna, jafnrétti. Þ. V. Munið að bezt er að kaupa 30 denier nælonsokka ineð hæstri lykkjatölu (gauge) til hversdagsnotkunar sumar, vor og haust en þykkari sokka að vetrarlagi. 15 deniers sokkar eru aðeins til sparinotkunar. -K Það er stundum erfitt að ná vínblettum úr dúkum en ef glycerine er núð inn í efnið svo það gegnvætist og látið liggja í hálftíma og bletturinn sfðan þveginn úr soðnu volgu vatni á bletturinn með glyceríninu að hverfa. -K Ef þér drekkið stórt glas af hvftkálssafa daglega og íninnkið við yður brauð og sætindi eigið þér á einni \iku að geta létzt ótrúlega mikið. Myljið hvítkálið á venjulegu raspjárni og pressið' safann út með saftpressu. Ósaltað hvítkálssoð á einnig að vcra megrandi. Jöfn hlutföll af safa og hvítkálssafa hreinsa magann og hör- undið' verður fallegra. Einnig er gott að bera Jressa blöndu á andlitið kvölds og morgna. -K Sprungið egg sýðst sem væri það heilt, ef salt og edik er látið út í vatnið. Sveskjur sem lagðar eru í bleyti í kalt te með sítrónu sneið' í og soðnar í leginnm verða mjög ljúffengar.. -K Ung stúlka mjög vel klædd, heittrúuð og kaþólsk fór oft lil skrifta. En hún gat aldrei fengið af sér að' játa sína stærstu synd — stolt yfir útliti sínn. Loksins lierti hún upp hugann og játaði fyrir sálusorgaranum að sfn mesta svnd va'ri hreykni yfir fegurð sinni. Barnið mitt, sagði presturinn og lagði höndina á öxl henni. Það er engin synd, jrað' er blekking. -K Ella var allra hjálparbella. l'.f einhver var veikur hjúkraði hún. Þegar hún lá banaleguna kom prestur- inn til hennar. Hún bað hann um að lofa sér því að hún yrði jörðuð utan kirkjugarðs bjá óskírðu börnun- um. Já, en góða mín, sagði presturinn, þá kemstu ekki til guðs — Jress vegna eru óskírðu börnin utan garðs. Það er nú einmitt þess vegna, sagði Ella, það er eng- inn til að líta eftir þeim nema ég. 59 MELKORKA

x

Melkorka

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Melkorka
https://timarit.is/publication/625

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.