Melkorka - 01.09.1960, Blaðsíða 22

Melkorka - 01.09.1960, Blaðsíða 22
hreyfingar gegn hinum ranglátu lagaboðum. Fyrir ná- lega 6 mánuðum voru um 8000 manns fangelsaðir vegna mótþróa við kynþáttalögin. Afestmegnis voru það blökkumenn, nokkrir Indverjar og fáeinir Evrópumenn. Stjórnin hefur goldið í sömu mynt með því að setja tvenn ný lög — annarsvegar um almennt öryggi og hins- vegar viðl)ótarlög í sakamálum. Liggja þungar hegning- ar við brotum gegn þessum lögum. Markmið skilnaðarstefnunnar er fyrst og fremst að auka á minnimáttarkend hins hörundsdökka fólks og sljóvga sjálfsvirðingu þess, með því að skipa því lægra sess í þjóðfélaginu. Slík meðferð hvetur ekki til dyggða, þar sem lítil eða engin von er til þess að ná rétti sínum. Hinir menntuðu blökkumenn telja sig einna verst leikna vegna aðskilnaðarstefnunnar, og gera sér ljóst, að í landi, sein setur meðborgurutn sínum slík lög, er þeim gert ókleift að nota menntun sína í þágu þjóðfélagsheildarinnar, Hvergi er griðastaður fyrir hinn menntaða blökkumann, undir stjórn hvítra manna, sem setur sér það markmið að drottna yfir réttlausum fjöldanum. Húsakostur flestra blökkumannanna er mjög slæm- ur, og getur varla talizt hæfur til mannabústaða. I’rátt fyrir umbótaviðleitni verður lítið ágengt, því verðlag allt er hátt og neyðin mikil. Windermere heitir víð- áttumikið svæði skammt frá Cape Town, þar sem þús- undir blökkumanna búa. Þar ríkir mikil eyntd, og býr fólkið mestmegnis í hreysum gerðum úr blikkdósum undan glerolíu. Regnið seitlar í gegnum þökin og göt- urnar um svæðið eru mestmegnis ósléttir troðningar, fullir af aurpollum, jafnvel um hásumartímann. Heil- brigðisástæður eru allar á frumstigi, t. d. verður víðast hvar að bera vatn til heimilisþarfa langt að. Það hlýtur að vera niðurlægjandi, að búa í svona ömurlegn þétt- býli. Þó má sums staðar finna þarna heimili, sem líta sæmilega þrifalega út. Myndskreytingar úr dagblöðum þekja veggina og á heimilinu er til rúmstæði, borð, nokkrir stólar o. s. frv. I S.-Afríku eru samtök, sem vinna að því að koma á skólaskyldu fyrir börn þeldökkra kynflokka, en enn sem komið er skortir til þess skóla. Barnafræðsla á meðal blökkumannanna er cnn á ntjög lágu stigi, nán- ar tiltekið fá um 20% barnakennslu. Samtök lilökku- kvenna hafa gengizt fyrir söfiiun til byggingar skóla- húsa. Hver einstaklingur er beðinn að leggja 1 sh. af mörkum til skólahalds. Um æðri menntun er J>að að segja, að Cape Town háskólinn og Witswaterand há- skólinn taka báðir takmarkaðan fjölda blökkumanna og kynblendinga, stúlkur og pilta, sem hljóta sömtt fræðslu og aðrir stúdentar, en fá að öðru leyti ckki að taka þátt í félagslífi skólanna. Báðir þessir liáskólar eru þó hlynntir jafnrétti innan skólanna. Auk háskól- anna eru nokkrir framhaldsskólar og búnaðarskólar, sem einungis eru ætlaðir blökkumönnum. Er nemend- um þar kennd búvísindi og önnur fr.æði, með [>að fyrir augum að þeir kenni |iau aftur kynbræðrum sínum víðsvegar um landið. I Cape Town hefin nýlega verið stofnaður sjóður til styrktar blökkumönnum, sem stunda háskólanám, en Jress er vænzt, að lánin verði endurgreidd, þcgar lántakandi hefur fengið arðberandi atvinnu. I einstöku tilfellum hafa hvitir stúdentar stofnað til kvöldskólahalds, þar sem þeir gerast kenn- arar blökkumannanna og stuðla þannig að auknuin skilningi og góðvild milli [)essara ólíku kynþátta. Fyrir nokkru var stofnaður nýr frjálslyndur stjórn- inálaflokkur í S.-Afríku undir forustu frú Ballinger þingfulltrúa. Markinið flokksins er að vinna að jafn- rétti hinna ýnisu þjóðarbrota í landinu. Vona þeir. sein vinna að sameiginlegri heill allra landsmanna í S.-Afríku, að þessi nýi flokkur fái að vaxa og sjá ár- angur af því starfi, scm hann hefur gert að markmiði sínu. Lauslcga þýtt úr grein eftir Daisy Solomon i lnternational Women’s News. S M Æ L K I Þegar Jóhannes hitti Jakob, nokkrti eftir jarðarför Elíasar vinar þeirra, með stóran demantsprjón í háls- bindinu, gat hann ekki orða bundizt. Hvar fékkstu þennan prjón? Þú hefur ekki keypt hann, hann er mörg þúsund króna virði. Jú, ég keypti hann samkvæmt fyrirmælum vinar okk- ar heitins, Elíasar. Hann fól mér í erfðaskrá sinni að kaupa stein til minningar um sig látinn fyrir 50 þús- und krónur. Þetta er steinninn. * Faðirinn sagði við son sinn, sem var að fara á berja- mó: Mundu eftir því að yfirgefa aldrei ueina þúfu fyrr en þú hefur tíut hvert einasta her. Sonurinn gerði þetta og var alveg forviða þegar hann hitti samferða- fólkið og sá að hann hafði tínt helmingi meira en það. Þessi piltur varð gæfumaður. + Bóndi var í læknisskoðun, hann ætlaði að fá sét líf- tryggingu. Læknirinn spurði: Hafið þér orðið fyrir slysi? Svar: Nei. Af hverju eruð þér þá haltur, spurði læknirinn. Nautið henti mér yfir girðingu.sagði hóndi. Nú, var það ekki slys, spurði læknirinn. Ó, nei, ekki al- deilis, gainli tuddi ætlaði sér þetta alltaf. * Ameríkumaður var að grobba af því við Ástralíu- mann hve stórir búgarðarnir væru í Ameríku. Ég þekki persónulega einn sem er svo stór að það tekur heila viku að ríða meðfram girðingu hans. Ekki kalla ég það stóran búgarð, sagði Ástraliumað- urinn. I okkar landi eru margir búgarðar svo stórir, að ef nýgift hjón eru send út í hagana til að mjólka kýrn- ar, eru það börn þeirra sem koma heim ineð mjólkina. 62 MELK.ORKA

x

Melkorka

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Melkorka
https://timarit.is/publication/625

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.