Skutull

Árgangur

Skutull - 24.12.1975, Blaðsíða 5

Skutull - 24.12.1975, Blaðsíða 5
SKUTULL 5 til að aka hraitt, en hann þorði það ekki vegna hálk- unnar. Hann varð að viður- kenna það fyrir sjálfum sér, að hann væri óvamiur að aka hratt og var satt að segja ailveg hættur að reyna það. Hann kveið fyrir háu brekk- unni fyrir innan borgina hún gat oft verið viðsjárverð í hálku. Alit gekk þetta samt vonum framar og þrátt fyrir mikla hálku og þó bifreiðin dansaði til, tóks-t honum þó að komast á leiðarenda. Hús þau, sem þarna voru, ef hús skyldi kalla, voru sýnilega byggð af miklum vanefnum, þetta voru kofar, sem hróflað hafði verið upp í flýti og til bráðabirgða. Eftir nokkra leit tókst honum loks að finna rétta húsið, lítinn skúr, sem ber- sýniliega var aðeins eitt her- bergi. Hann barði að dyrum en enginn kom til dyra. Ef til viil var emginn heima, ef til vill hafði kaupmannsfrúin boðið allri fjölskyldunni að halda jólin hjá sér. Hann fann til sárrar gremju með sjálfum sér. Honum datt í huga að reyna að sjá imn um glugg- ann hvort ekki væri einhver inni. Hann sá ekki betur en þar væru böm að leik svo hann ákvað að kveðja dyra á ný. Það fór sem fyrr, eng- inn kom og því greip hann til þess ráðs að reyna að opna hurðina. Jú — mikið rétt, hún reyndi-st ólæst og hann gekk inn. Það var hálfgert myrkur innd og hann var nokkurn tíma að átta sig. Tvö börn voru í áflogum á gólfinu, önnur tvö lágu í rúmfleti við vegginn að því er virtist sofandi. Inni í þessari vistarveru var ákaf- lega loftlaust, einhver inni- byrgð lykt, samMand af sorp- lykt og þeim þef, sem kemyr af börnum þegar þau pissa á isiig og ekkert er síðan hirt um þau. Á borði, sem stóð undir þeim eina glugga sem á hús- inu var, lágu óhreinir diskar og matarleifar, er færðu heim sanninn um, að hér hafði verið síðast snæddur saltfiskur. Húsgögn voru emgin, utan þetta borð og nokkrir eldhús- kollar. Pilltimum vafðist tunga um tönn, þetta var alt svo fram- andi fyrir honum, að hann gleymdi í svipinn hvers vegna hann var hér. Það var ekki fyrr en hann fann að hann hélt á stórum, þungum 'böggli, að hann áttaði sig. Börnin höfðu hætt áflogum sínum og horfðu nú stórum, spyrjandi augum á piltinn og þó fremur á bögguiinn. Börn þessi voru bersýni- lega tvíburar, drengur og stúlka, á að giska þriggja ára, bæði fáklædd og óhrein. „Hvar er mamma ykkar?”, spurði pilturinn. „Mamma er hjá Bírnu”, bablaði litla stúlk- an. Pilturinn ákvað að afhenda mú bara pakkann og fara og sagði að þennan pakka ættu þau að eiga. Hann lagði pakk- ann á gólfið og þustu þá að fleiri börn og tóku að reyna að opna pakkann. En þá heyrðisit hljóð úr horni: „Er þetta matur?” var sagt með drafandi karlmannsrödd, en eigandi hennar hafði sem sé legið í fletimu við vegginn, sýnilega húsbóndinn sjálfur. Piltinum brá, við 'þessu hafði haim ekki búist. Honum vafðist tunga mn tönn. Hann reymdi að svara spumingunni, sagði að þetta væri fatnaður og hver hefði sent harun. Þegar húsráðandinn hafði heyrt þetta, lagðist hann aftur í fletið og lét sér sýni- lega fátt um finnast. Erindi piltsins var nú lokið, hann kvaddi og óskaði gleði- legra jóla um leið og hann gekk út. Á leiðinni. heim hugsaði hann um eymdina, sem hann hafði orðið áhorfandi að, hugsaði um óréttlætið og niðurilæginguna, isem þarna kom niður á saklausum böm- um. Hann bar þetta allt sam- an við þau jól, sem hann skyldi nú haida með fjöl- skyldu sinni. Og alt í einu var hann farinn að gráta............... Vestlirðingar athugið! Hef opnað lögfræðiskrifstofu að Silfurtorgi 1, ísafirði. Viðtalstími kl. 15—17 alla virka daga. Annast öll lögfræðilieg störf, m.a. innheimtu skulda, málflutning, fasteigna- og skipasölu, skattamál o.fl. Hef til sölu eftirtaldar fasteignir og skip: 1. Verkstæðishúsnæði að Fjarðarstræti 20, 108 m2 2. Stekkjargötu 7, Hnífsdal, íbúðarhúsnæði 150 m2 ásamt risi, þvottahúsi og geymslum. 3. M.b. Hafdísi, ÍS-71, 9,5 smálestir að stærð. Byggð árið 1961. Hafið samband við undirritaðan, ef þér viljið kaupa eða selja fasteign eða skip. Mistök við samningsgerð geta orðið dýrkeypt. Notið yður því kunnáttu fagmanns. Tryggvi Guðmundsson, lögfr. Silfurtorgi 1, sími 3940 Heimasími 3702 HALVES IN HEAVY SYRUP KAUPMENN - KAUPFÉLÖG Jólasendingar af nýjum ávöxtum verða til afgreiðslu 5.—15. desember. Amerísk delicious epli í 20 kg kössum Frönsk epli rauð og gul í 10 kg kössum Jaffa appelsínur í 20 kg kössum Fyrirliggjandi allar ORA VÖRURNAR m.a. NÝJA RAUÐKÁLIÐ. Næsta sending af IXL NIÐURSOÐNUM ÁVÖXTUM kemur í janúar og verður á sérlega hagstæðu verði. SANDFELL HF. Símar 3500 & 3570 ÍSAFIRÐI Stúlka Helst vön vélritun óskast til starfa á sýsluskrifstofuna. Upplýsingar á skrifstofunni í síma 3733 eða 3159. Sýslumaðurinn í Isafjarðarsýslu Bæjarfógetinn á Isafirði Gleðileg jól! Farsælt homondi ór! ,. Þökhum viðskiptin -m BRUNABÓTAFÉLAG ÍSLANDS ísafjarðarumboð Aðalstræti 22 — Sími 3164

x

Skutull

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skutull
https://timarit.is/publication/626

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.