Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - okt 2001, Qupperneq 9
Il.tbl.
iióvei -b e r 1967
I.árc;.
„Góða Vaktin" var blað sem gefið var
út af starfsmönnum SR 1967. Ritstjórí
að blaðinu sem neðangreind saga
birtist í var Steingrímur Krístinsson.
Jóhann Pétur (Mannsi) fann blað
þetta við tiltekt í bílskúr sínum
nýlega.
Ef til vill s
Óvenumikil leynd hvíldi yfir
síðasta stjórnarfundi, stjórnar S.R.
Meðal annars því til sönnunar þá
var Jóhanni Möller
gefið inn svefnlyf,
til að fyrirbyggja
að nokkuð kviss-
aðist út um
leyndamálið.
En blaðið hefur góð-
ann 007 mann í þjón-
ustu sinni og upplýsti hann eftir-
farandi: Stjórnin hefur ákveðið að hefja
smíði á geimskipi einu miklu og valið
til þess sína bestu menn. Einnig hefur
skipshöfnin verið ákveðin, en þó enn
sem komið er án þeirra vitneskju.
Sveinn Ben. átti tillöguna og varð hún
þá auðvitað samþykkt samhljóða strax.
En nota skal skipið til að flytja gamla
starfsmenn til Marz og fleiri stjarna, í
helgarleyfi á haustin.
Sigurður Ellefsen mun teikna skipið
með hinum alkunna blýhanti sínum svo
og sjá um smíði þess og er ekki að efa
að menn þeir sem ráðnir eru til að
vinna verkið, geta hvílt sig á meðan
„hann" vinnur verkið, því allt þarf að
vera 1. flokks. Páll Jónsson mn annast
allar innréttingar, ásamt öllum þeim
aragrúa af fagmönnum sem hjá honum
vinna.
Færustu málarar
munu sjá um alla
málningu, en það
munu gera þeir Jónas
Guðmundsson málari
og Snorri Dalmann.
Gunnar á Vatni mun
handlanga til þeirra
alla málningarvöru nema þynni. Að
utan mun Gísli Elíasar sjá um að það
verði sprautað eftir ákveðnum reglum.
Tómas Jó-
hannsson
mun laga
„special"
eldsneytis-
blöndu.
A 1 1 a r
grófari raf-
lagnir mun Þórir
Björnsson og hans
menn annast en
Jóhann Tómasson
aftur á móti þær
fingerðu. Jón
Kristj ánsson
mun sjá um
kíóakleiðslur
svo og alla
sorpeyðingu á
1 e i ð u n u m .
Leifi Hólm sem hefur svo
nákvæmt auga mun taka út allar beinar
línur og slétta fleti.
Stýrimaður og skipstjóri mun verða
hinn kunni ökuþór Kristinn Georgsson
og aðstoðarmaður hans mun verða Jó-
hann P. Halldórsson sen hann hefur
nokkra reynslu í flugi og Halldór
Bjarnason sem er í góðri þjálfun.
1. meistari í vél verður
hinn óviðjafnanlegi As-
geir Björnsson og að-
stoðarmenn hans verða
þeir Andersen
og Stebbi gamli
sem er með
nokkra reynslu í
meðferð véla. Siglingafræðingur og
leiðarviti verða Jonni Jóns á vélaverk-
stæðinu. Allar hjúkranir, líkamlegar og
andlegar munu yngismeyjarnar á skrif-
stofunni annast. En stúlkurnar á efna-
rannsókn munu annast allar hæðamæl-
ingar.
Allt eftirlit með hreinlæti
mun Gísli Hallgríms annast. Læknir
skipsins verður Steini Einars vegna sinn-
ar miklu reynslu. Matreiðslu munu þeir
Símon Már, Hallur Gari og Jóhann Þrasi
annast.
Fararstjóri í fyrstu ferðinni
verður Gústi Nílsson
því það þykir full-
sannað að hann
muni ekki fara
i
hina leiðina.
Ekki er fullráðið hve
margir farþegar verða í fyrstu ferðinni,
nema það að EggertTh. fær far gegn því
að beita sinni alkunnu ritsnilld og skrifa
ferðasöguna til birtingar í „Góðu vakt-
ina“. Og Jóhann Sigurðsson gegn því að
semja ekki drápu um verksmiðjustjórn-
ina. Líklega verða þeir einu farþegarnir
sem þurfa að greiða fyrir farið.