Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.07.2008, Síða 2

Bjarmi - 01.07.2008, Síða 2
GARÐHEIMAR INGI HÓPFERÐIR 55444 66 S. Waage sf GARÐABÆ Hjálparstarf VTT/ kirkjunnar spEEdo: MILLI HIMINS OGJARÐAR Engin hætta virðist vera á því að kristið fólk verði nokkurn tímann sam- mála um alla hluti, enda er það engin nauðsyn. Reynsla fólks er misjöfn sem og persónuleikar þessm, og það skilur og meðtekur fagnaðarerindið með mismuandi hætti. Þó skiptir miklu máli að keppt sé eftir því að vera sammála um það sem mestu máli skiptir. Fyrir því fundu menn strax í frumkristninni og er postullega trúarjátningin tilraun til að koma orðum að því sem kirkjan álítur vera kjarna og grundvöll trúarinnar. Síðar kom í Ijós þörf fyrir fleiri játningarsem ekki verður fjallað um hér. Ýmsar samþykktir hafa verið undirritaðar á liðnum áratugum til að sameina fólk og til að draga fram það sem sameinar frekar en það sem sundrar. Engu að síður verður áherslumunur alltaf fyrir hendi. Eftirfar- andi orð eru eignuð Rubert Meldeníusi: „í aðalatriðum eining, í auka- atriðum frelsi, í öllum efnum kærleikur og umburðarlyndi." Meðal þess sem birtist í ýmsum myndum er það sem undirritaður kallar annars vegar dýrðarguðfræði og hins vegar eymdarguðfræði. Dýrð- arguðfræðin leggur áherslu á að dýrð himinsins stendur okkur til boða, og þau sem lengst ganga, að hún sé sjálfsögð krafa. Lífið hér á jörð eigi að einkennast af velgengni og ríkidæmi, góðri heilsu og velfarnaði á öllum sviðum. Horft er til Jesú hins upprisna sem hefur sigrað allt hið illa. Við fáum að smakka himininn hér og nú. Dýrðarguðfræðin lendir í vandræðum með mótlæti lífsins, sjúkdóma og fátækt. Eymdarguðfræðin leggur áherslu á hið mannlega. Þar undir fellur þján- ing Jesú Krists og að þjáning hans sýni að hann þjáist með okkur og fyrir okkur. Þjáningin getur orðið svo mikilvæg að hún verði jafnvel keppikefli í sjálfu sér. Hinn upprisni Jesús er einhvern veginn fjarlægur og lítið rými gefst fyrir kraftaverk og himneska opinberanir. Þar lendir hún í vandræðum. í þessu, eins og svo mörgu öðru, megum við ekki missa sjónar á heild- armyndinni. Jesús er krossfestur og upprisinn. Líf okkar hér á jörð er líf í spennu hins gamla og hins komandi, hins jarðneska og hins himneska. Við erum mannleg en eigum einnig heilagan anda lifandi Guðs. Kraftar himinis hafa brotist inn í þennan heim með komu Jesú Krists og úthell- ingu Heilags anda. Við megum hvorki gleyma okkur í eymdinni né dýrðinni. Guð á máttinn. Hann grípur inn í aðstæður okkar og honum er ekkert um megn. Þeirri trú megum við ekki láta ræna úr hjörtum okkar. Jafnframt má það ekki gleymast að köllun okkar er sú að lifa lífinu og þjóna Drottni í föllnum heimi þar sem hamförum, sjúkdómum og alls kyns eymd hefur ekki verið útrýmt. Tvær greinar þessa tölublaðs varpa Ijósi á þessi mál, annars vegar saga um mikinn missi, hins vegar saga um miklar lækningar. Spillingin býr enn í líkama okkar og persónuleika. Við erum samtímis réttlætt og syndug. En við erum kölluð til helgunar og eftirfylgdar. Það felur í sér sjálfsskoðun í heiðarleika og einlægni, til iðrunar, fyrirgefn- ingar og umbreytingar. Við erum kölluð til þjónustu í heimi óréttlætis, haturs, ófriðar, syndar og dauða. Við erum talsmenn réttlætis, kærleika, friðar, fyrirgefningar og lífs. Okkur ber að halda okkur við Jesú. Hann hefur lofað að vera með okkur alla daga, allt til enda veraldar. Ragnar Gunnarsson

x

Bjarmi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.