Bjarmi

Volume

Bjarmi - 01.07.2008, Page 5

Bjarmi - 01.07.2008, Page 5
ESPEN OTTOSEN BYLGJAN EYÐILAGÐI EKKI TRÚNA VIÐTAL ÞETTA BIRTIST í HAUST í NORSKA TÍMARITINU YAPA OG HÉR BIRT MEÐ GÓÐFÚSLEGU LEYFI ÚTGEFENDA. ÞEGAR FLÓÐBYLGJAN SKALL Á STRÖNDUM TÆLANDS ANNAN DAG JÓLA ÁRIÐ 2004 MISSTI FLEMMING-KOFOD SVENSEN TVÖ BARNABÖRN, SON OG TENGDADÓTTUR. EN BYLGJAN TÓK EKKI TRÚNA FRÁ HONUM. - Áður hefur mér áreiðanlega fundist sólin skína á götu mína. Nú er jafnan þungskýjað og dimmt. Það er erfitt fyrir sólina að skína í gegn. Ég hafði ekki gert mér í hugarlund að sökn- uðurinn vegna ástvina minna yrði svona sár og nístandi, segir danski presturinn, stjórnmálamaðurinn og rithöfundurinn Flemming Kofod- Svendsen. Yapa kemur til fundar við Flemm- ing og Inger Margrethe konu hans í stóru einbýlishúsi í Birkerod, um tutt- ugu mínútna ferð með lest frá mið- borg Kaupmannahafnar. Flér hafa þau átt heima í meira en 30 ár og hér hafa öll fjögur börn þeirra vaxið úr grasi. Flemming segir opinskátt og heið- arlega frá sorginni eftir að hann missti son sinn Jacob, tengdadótturina Lis- beth og barnabörnin Silas og Regitze. - Reynsla mín er sú að sorgin kemur í bylgjum. Örvæntingartilfinn- ing getur skyndilega komið aftur. Það gerist til dæmis í tengslum við atburði í fjölskyldunni, segir Flemming og tekur fram að hann sé þakklátur fyrir að eiga samheldna fjölskyldu. Það sést líka á heimili hans. Myndir af börnum og barnabörnum eru áberandi. Danski presturinn hefur alltaf haft áhuga á garðinum sínum, ávaxtatrjám og runnum. Einn af hápunktum sum- arsins hefur verið að tína jarðarber, kirsuber, plómur, rifsber eða sólber. En nú eru slíkar stundir einnig sárs- aukafullar. - Ég hef oft haft barnabörnin með við uppskeruna. Nú vantar tvö. Þessar góðu stundir ýfa jafnframt upp sökn- uðinn eftir Sílasi og Regitze, segir Flemming sem getur nefnt mörg svipuð dæmi. Eitt það erfiðasta fannst honum að taka til og tæma íbúð Lis- betharog Jacobs. JÓLAFRÍ í SÝRLANDI Flemming hefur dreymt um það allt lífið að sjá ána Evfrat. Hann fékk drauminn uppfylltan þriðja dag jóla árið 2004. Hann stóð á bökkum árinnar ásamt konu sinni Inger Margr- ethe og dótturinni Kathrine, sem lagði stund á arabísku í Damaskus í Sýrlandi, þegar símaskilaboðin bárust. Þau komu frá yngsta syni þeirra og greindu frá flóðbylgjunni sem hafði skollið á Suðaustur-Asíu. Flemming og Inger Margrethe vissu að börn og barnabörn voru íTælandi. - Einungis tveimur dögum áður höfðum við fengið tölvupóst frá syni okkar í Tælandi. Hann sagði að allt gengi vel og þau héldu til á frábærum stað, segir Flemming sem vissi ekki nákvæmlega hvar fjölskyldan var. Tælandsferðin átti að vera lang- þráð fjölskyldufrí. Þau ætluðu að ferðast í tvo mánuði. Um jólin voru

x

Bjarmi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.