Bjarmi - 01.07.2008, Side 16
HINN HÚÐFLÚRAÐI
TODD
Todd Bentley er aðeins 32 ára gamall.
Hann frelsaðist úr harðri neyslu fíkni-
efna þegar hann var átján ára. Guð
vitjaði hans þegar hann var staddur
í húsvagni eiturlyíjasala nokkurs.
Nokkrum árum síðar stofnaði hann
Fresh Fire Ministries og hefur hann
ferðast á vegum samtakanna og
heimsótt fjölda kirkna og haldið lækn-
inga- og vakningarsamkomur víða
um heim. Fjöldi fólks hefur læknast
á samkomum hjá honum í Afríku
og á Indlandi. Hann segir um vakn-
inguna núna að þetta sé í fyrsta sinn
sem hann sjái svona marga læknast í
Ameríku og minni það sig á herferðir
sem hann hefur tekið þátt í í þriðja
heiminum.
Fatastíll hans er ekki dæmigerður
fyrir bandaríska sjónvarpsprédikara.
Hann mætir iðulega í dökklituðum
áletruðum stuttermabolum eða Har-
ley Davidson skyrtum og gallabuxum,
jafnvel götóttum. Húðflúrið læðist
upp úr hálsmálinu og fram eftir öllum
handleggjum. í öðru eyranu er hann
með hring og eins fyrir neðan vörina
og minnir það mig helst á karlana í
Pókot í Keníu þegar að skreytingum
kemur. Eitt kvöldið var hann í bol sem
á var letrað: Jesús elskar mig og húð-
flúrið mitt.
Fatastíllinn er sjálfsagt tengdur því
að Todd þráir að ná til fólksins á göt-
unni og samfélaga vélhjólafólks.
Hann er einstaklega geðfelldur
maður með mikinn glampa í augum.
Hann sýnir mikla samkennd með fólki
og er ákaflega afslappaður, glaður og
hress.
SAMKOMURNAR
Todd notar mikinn hluta dagsins til
að undirbúa samkomurnar, einkum í
bæn og tilbeiðslu frammi fyrir augliti
Guðs.
Samkomurnar hefjast með lof-
gjörð sem yfirleitt er stýrt af Roy
nokkrum, samstarfsmanni Todds, og
hljómsveit. Stundum hefur hann þurft
að hvíla sig og aðrir séð um söng og
undirleik. Drjúgur tími er tekinn í
söng og tilbeiðslu eða allt upp í tvær
klukkustundir.
Samt er ekki um að ræða ákveðið
skipulag og bregðast bæði Todd og
samverkafólk hans við leiðsögn Heil-
ags anda. Hópur aðstoðarfólks og
gesta situr uppi á sviði. Yfirleitt er flutt
ávarp þegar nokkuð er liðið á lofgjörð-
ina og tilkynnt hvaðan erlendu gest-
írnir séu en þeir hafa iðulega verið frá
um 30 löndum um allan heim. Þá er
Todd kynntur og boðinn velkominn.
Fram að því hefur hann gengið um
pallinn og lofað Guð, staðið eða legið
á gólfinu í bæn og tilbeiðslu.
Það sem eftir er samkomunnar
leiðirTodd yfirleittframvinduna. Hann
ávarpar fólkið, talar um vakninguna
og lækningarnar sem hafa átt sér stað
bæði í Lakeland og eins úti í heimi þar
sem fólk hefur verið að horfa á sam-
komurnar. Hann horfír oft í upptöku-
vélina og beinirorðum sínum beinttil
þeirra sem sitja við tölvuskjáinn heima
eða fyrir framan sjónvarpið sitt. Hann
hvetur fólk til að leita Drottins og oft
er fólki boðið fram og gefið tækifæri
til þess að taka við Jesú Kristi sem
frelsara sínum.
í prédikun sinni les Todd mjög
oft eða vísar í texta úr Biblíunni um
það þegar Jesús miskunnaði fólki og
læknaði það. Eins eru ýmsir textar
Gamla testamentisins í uppáhaldi,
einkum þeir sem fjalla um spámenn-
ina og dýrð Drottins. Hið sama er að
segja um texta úr bréfum Páls þar
sem hann fjallar um Heilagan anda og
upprisukraftinn. Hugtök eins og nær-
vera, dýrð, andrúmsloft, smurning og
fleiri eru notuð til að tjá nærveru Heil-
ags anda. Todd talar einnig mikið um
engla í því sambandi.
Beðið er um lækningu fyrir fólki
með ákveðna sjúkdóma og oft eru
borin fram þekkingarorð um sjúk-
dóma sem eru að læknast á þeirri
stundu sem þau eru sögð.
Fólkerkallað uppá pallinn, sumttil
aðfáfyrirbæn vegnaákveðinna meina
og sumt til að bera vitni um lækningu
sína. Sumir hafa fengið lækningu með
því að fylgjast með samkomunum á
netinu eða í sjónvarpinu, jafnvel í end-
ursýningu.
Inn á milli er sungið, viðstaddir
beðnir um að biðja með Todd og oft
er klappað og mikið líf í salnum.
Stundum er talað í tungum og
vísað til þess að útleggingin komi í
þekkingarorðum sem fram eru borin
síðar á samkomunni. Oft má sjá fólk
hristast eða að kippast til, margir falla
í gólfið, sumum er ýtt og öðrum ekki.
Hlátrasköll heyrast við og við.
Todd sparar ekki röddina og er
ótrúlegt að maðurinn skuli geta
hrópað og kallað kvöld eftir kvöld,
viku eftir viku. Inn á milli fær hann
sér próteindrykkinn sinn og minnist á
það að hann hafi lést um tæp 20 kíló
á undanförnum mánuðum. Um leið
minnir hann gjarnan á að mikilvægt
sé að hugsa vel um heilsuna, hreyfa
sig og þjálfa líkamann.
Við og við er beðið um kraft og
eld og fyrirbænin beinist að salnum:
„Eldur, eldur, eldur... kraftur, kraftur,
kraftur... íJesú nafni."
ÓTRÚLEGAR
LÆKNINGAR
Margir stíga á stokk og vitna um
lækningu sína í Lakeland. Aðrir senda
tölvupóst eða senda jafnvel ættingja
með fréttirnar. Ótrúlegustu mein og
sjúkdómar læknast og vitað er um
20 manns sem hafa verið úrskurð-
aðir látnir en hafa vaknað til lífsins á
ný þegar beðið var fyrir þeim. Þar á
meðal eru einstaklingar með heila-
dauða sem átti að fara að taka úr sam-
bandi við öndunarvélar og einhver
var kominn í líkhúsið ef rétt er skilið.
Gífurlegur fgöldi fólks hefur fengið
bætta sjón og heyrn, bakmeiðsli hafa
læknast, krabbameinsæxli skroppið
saman og horfið og svo má lengi telja.
Todd vill umfram allt fá staðfestingu
lækna á breytingum þeim sem verða
og margar slíkar staðfestingar hafa
verið lesnar upp.
16