Bjarmi

Årgang

Bjarmi - 01.07.2008, Side 27

Bjarmi - 01.07.2008, Side 27
BJARNI RANDVER SIGURVINSSON SAMRÁÐSVETTVANGUR TRÚFÉLAGA Á ÍSLANDI OG SAMSKIPTI ÞJÓÐKIRKJUNNAR VIÐ ÖNNUR TRÚARBRÖGÐ STARFSHÓPUR ÞJÓÐKIRKJUNNAR UM SAMSKIPTI VIÐ ÖNNUR TRÚARBRÖGÐ HEFUR NÚ VERIÐ STARFRÆKTUR í TÆP SEX ÁR OG ÁHI HANN M.A. FRUMKVÆÐIÐ AÐ STOFNUN SAMRÁÐSVETTVANGS TRÚFÉLAGA Á ÍSLANDII SAMVINNU VIÐ ALÞJÓÐAHÚS 24. NÓVEMBER 2006 AÐ VIÐSTÖDDUM FORSETA ÍSLANDS í RÁÐHÚSI REYKJAVÍKUR. Áðuren haftvarsamband viðforsvars- menn þeirra trúfélaga á íslandi sem skráð eru hjá Hagstofunni til að kanna möguleikann á stofnun samráðsvett- vangs voru guðfræðilegu forsend- urnar hins vegar íhugaðar vandlega og starfshættir sambærilegra starfs- hópa og samráðsvettvanga kann- aðir í nágranalöndunum, aðallega þó hjá lúthersku þjóðkirkjunum á Norðurlöndunum og anglíkönsku kirkjunni á Bretlandseyjum. Þar sem kristnir menn hafa ekki verið á einu máli um með hvaða hætti haga eigi samskiptum við önnur trúarbrögð og hvernig túlka beri einstaka ritning- artexta í þv( sambandi var þeim mun meiri ástæða til að vanda til verksins og leita leiða sem allra flestir gætu sæst á, bæði hvað varðar starfshætti starfshópsins og aðkomu hans að samráðsvettvangi trúfélaga. STARFSHÓPUR ÞJÓÐKIRKJUNNAR UM SAMSKIPTI VIÐ ÖNNUR TRÚARBRÖGÐ Það var haustið 2002 sem dr. Sigurður Árni Þórðarson, þáverandi verkefna- stjóri guðfræði og þjóðmála á Bisk- upsstofu, bauð nokkrum guðfræð- ingum á fund til að ræða möguleikann á myndun starfshóps um samskipti þjóðkirkjunnar við önnur trúarbrögð. Strax á fyrsta fundinum var ákveðið að koma starfshópinum á fót og voru framan af í honum Gunnar J. Gunnars- son, sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir, sr. Toshiki Toma, sr. Þórhallur Heimisson og undirritaður auk Sigurðar Árna en árið 2003 tók Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir guðfræðingur sæti hans. Undanfarin fjögur ár hafa hins vegar aðeins Steinunn Arnþrúður, Toshiki og undirritaður skipað starfshópinn. Starfshópurinn er á vegum biskups (slands og er starfsmönnum og söfn- uðum þjóðkirkjunnar til stuðnings og ráðgjafar í þvertrúarlegum málefnum. Hlutverk hans er að hafa yfirsýn yfir þá trúarhópa í landinu sem ekki eru kristnir, vera ráðgefandi um sam- skipti við þá, veita upplýsingar um afstöðu kirkjunnar til þeirra og koma á tengslum við forsvarsmenn þeirra eða fulltrúa. Myndun starfshópsins þótti aðkallandi vegna aukinna áhrifa ann- arra trúarbragða í landinu og marg- víslegra tengsla þjóðkirkjufólks við fólk af öðrum trúarbrögðum á ýmsum sviðum mannlífsins. Þjóðkirkjan hafði 27

x

Bjarmi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.