Bjarmi

Volume

Bjarmi - 01.07.2008, Page 29

Bjarmi - 01.07.2008, Page 29
FRÁ FUNDINUM í MOSKVU SUMARIÐ 2006 STOFNUN SAMRÁÐSVETTVANGS TRÚFÉLAGA Snemma var um það rætt innan starfshóps þjóðkirkjunnar að koma þyrfti á fót samráðsvettvangi trú- félaga af sem flestum trúarbrögðum eins og gert hefur verið í flestum nágr- analöndunum til að liðka fyrir miðlun upplýsinga, stuðla að málefnalegum samskiptum og umburðarlyndi og taka á vandamálum sem upp geta komið í þjóðfélaginu. Eftir að hafa ígrundað guðfræðilegar forsendur slíks samráðsvettvangs og borið þær undir biskup íslands var í sam- vinnu við Alþjóðahús boðaður fundur vorið 2005 með forystumönnum allra skráðra trúfélaga á íslandi með a.m.k. 150 meðlimi samkvæmt Hagstofunni og hugmyndimar um stofnun sam- ráðsvettvangs kynntar fyrir þeim en fulltrúum smærri skráðra trúfélaga var boðin þátttaka síðar. Allmargir fundir voru haldnir næsta eitt og hálfa árið, farið vandlega ofan í drögin að stefnu- lýsingu og leitað leiða til að allir gætu samþykkt textann af heilum hug. í stefnulýsingunni kemur fram að markmið samráðsvettvangsins sé „að stuðla að umburðarlyndi og virðingu milli fólks með ólík lífsviðhorf og af ólíkum trúarhópum og trúarbrögðum og standa vörð um trúfrelsi og önnur mannréttindi." Jafnframt er tekið fram að slíkt náist „ekki með því að sam- sinna hverju sem er eða láta hvað sem er gagnrýnilaust heldur með því að vera reiðubúinn til að hlusta á sjón- armið annarra, setja sig í spor þeirra og virða sjálfsákvörðunarrétt sjálfráða einstaklinga og trúfélaga." Áhersla er lögð á að virða beri „að aðildarfélögin árétti sérstöðu sína í kenningarlegum efnum, boðun og starfsháttum" og tekið fram að tilgangurinn sé hvorki sameining trúarbragða né sameig- inlegt helgihald aðildarfélaganna í nafni samráðsvettvangsins. Enda þótt sérhverju aðildarfélagi sé frjálst að efna til sameiginlegs helgihalds með öðrum þegar tilefni gefst og aðstæður leyfa megi aðeins gera það í nafni viðkomandi félaga en ekki vett- vangsins. Þá er einnig lögð áhersla á að óheimilt sé að gefa út yfirlýsingar í nafni samráðsvettvangsins sem ekki hafi verið samþykktar af öllum aðildarfélögunum og geti hvorki full- trúarnir skuldbundið eigin trúfélög né samráðsvettvangurinn aðildarfélögin á nokkurn hátt. Þetta þýðir með öðrum orðum að fyrst og fremst er um að ræða vett- vang þar sem leiðtogar trúfélaganna eða fulltrúar þeirra fá tækifæri til að kynnast, skiptast á upplýsingum og bregðast við vandamálum sem upp kunna að koma milli þeirra eða í þjóðfélaginu. Stefnulýsingarskjalið hefur ennfremur þá sérstöðu umfram önnur sambærileg skjöl um þvertrúar- leg málefni frá nágranalöndunum að þar er tekið fram réttmæti þess að aðildarfélögin árétti sérstöðu sína í kenningarlegum efnum, boðun og starfsháttum og viðurkenni réttmæti málefnalegrar gagnrýni. Stofnfundur samráðsvettvangs trúfélaga á íslandi var haldinn ÍTjarn- arsal Ráðhúss Reykjavíkur 24. nóv- ember 2006 og fluttu Ólafur Ragnar Grímsson forseti íslands, Marsibil J. Sæmundsdóttir formaður mannrétt- indanefndar Reykjavíkurborgar og Einar Skúlason framkvæmdastjóri Alþjóðahúss ávörp en Guðrún Dögg Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Mannréttindaskrifstofu íslands, var fundastjóri. Karl Sigurbjörnsson biskup íslands skrifaði undir stefnulýs- ingu samráðsvettvangsins fyrir hönd þjóðkirkjunnar og gerðu leiðtogar eða fulltrúar hinna trúfélaganna slíkt hið sama fyrir hönd sinna. Öll þau trú- félög sem tekið höfðu þátt í undirbún- inginum frá upphafi skrifuðu undir en það eru auk þjóðkirkjunnar Rómversk- kaþólska kirkjan, Fríkirkjan í Reykjavík, Krossinn, Kirkja sjöunda dags aðvent- ista, Búddistafélag íslands, Fríkirkjan Vegurinn, Bahá'ísamfélagið, Félag múslima á íslandi, Ásatrúarfélagið, Heimsfriðarsamband fjölskyldna og sameiningar (moonistar), Söfnuður Moskvu-Patríarkatsins í Reykjavík (rússneska rétttrúnaðarkirkjan) og Kirkja Jesú Krists hinna síðari daga heilögu (mormónar). Jafnframt skrif- aði framkvæmdastjóri Alþjóðahúss undir stefnulýsinguna en hann hefur frá upphafi verið upplýsingafulltrúi samráðsvettvangsins. Nýverið fengu Soka Gakkai búddhistar svo aðild að samráðsvettvanginum eftir að hafa fengið skráningu sem trúfélag hér á landi en sóknarprestur Óháða safn- 29

x

Bjarmi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.