Búnaðarrit - 01.01.1983, Page 52
46 BÚNAÐARRIT
dvelja hér í Jónshúsi í Kaupmannahöfn um skeið, þar sem
þetta er skrifað.
í janúar 1983,
Óli Valur Hansson.
Ylræktarrábunauturinn
Á liðnu ári var meginhluti starfa minna í þágu garðyrkju-
bænda og samtaka þeirra. Auk þess sinnti ég margvíslegum
almennum störfum, er snerta garðyrkjumál hér á landi.
Helstu garðyrkjuhverfi voru heimsótt nokkuð reglulega og
aðrar gróðrarstöðvar eftir því, sem við var komið.
Hvers konar þjónusta á sviði leiðbeininga var látin í té,
bæði fyrir garðyrkjubændur og aðra aðila, sem fást við
ræktun. Leiðbeiningar voru á öllum sviðum, er garðyrkju
varðar, s. s. um áburð, jarðveg, ræktun, sjúkdóma,
teikningar, kostnaðaráætlanir, tæknibúnað, byggingar og
útreikninga hvers konar.
Pá mætti ég á ýmsa fundi í samtökum garðyrkjubænda,
s. s. hjá Sölufélagi garðyrkjubænda á vor- og haustfund,
marga fundi hjá Sambandi garðyrkjubænda, var fundar-
stjóri á ráðstefnu um garðyrkjumál, er Samband garðyrkju-
bænda boðaði til í nóvember, og mætti á fjölda funda í
garðyrkjubændafélögum svo nokkuð sé nefnt. Þá var ég
leiðsögumaður þegar Pálmi Jónsson, landbúnaðarráðherra,
Jónas Jónsson, búnaðarmálastjóri, Ingi Tryggvason, for-
maður Stéttarsambands bænda, og ýmsir forystumenn í
landbúnaði og ráðamenn í lána- og fjárfestingarmálum,
fóru austur um sveitir í boði Sambands garðyrkjubænda.
Var þeim kynnt starfsemi og rekstur garðyrkjustöðva og
helstu þættir þeirra skýrðir og svo hin helstu vandamál, sem
við er að glíma.
Þá var ég skipaður í nefnd, sem stofnuð var á áliðnu
sumri og nefnist Samstarfsnefnd um mat og flokkun