Búnaðarrit - 01.01.1983, Page 62
56
BÚNAÐARRIT
félags íslands, en aðrir nefndarmenn eru þessir: Gunnar
Guðbjartsson, tilnefndur af Framleiðsluráði, og er hann
jafnframt formaður, Andrés Jóhannesson, kjötmatsfor-
maður, án tilnefningar, dr. Sigurgeir Þorgeirsson, tilnefnd-
ur af Rala, og Bjarni Þór Ólafsson, matreiðslumaður,
tilnefndur af Félagi matreiðslumanna. Nefndin hélt 4 fundi
á árinu. Hún efndi til sýningar á kindakjöti í Reykjavík,
meðan á sláturtíð stóð. Naut hún í því velvilja afurðasölu
S.Í.S. á Kirkjusandi. Tókst sýningin hið bezta þrátt fyrir
þrönga aðstöðu. í undirbúningi er að efna til nautakjöts-
sýningar í Reykjavík í byrjun marz. Höfum við Erlendur
Jóhannsson gert tillögur um val á gripum til slátrunar í
þessu skyni. Þar verður leitað eftir því, hverjar óskir
neytenda eru (eins og gert var á kindakjötssýningunni),
þannig að með því ættu að fást svör við sumu af því, sem
Framleiðsluráð landbúnaðarins hefur leitað eftir. Ég hef
tekið saman ábendingar um flokkun nautgripakjöts fyrir
nefndina. Er stefnt að því, að hún ljúki störfum fyrir árslok
1983.
Fundur um jöfnun mjólkurframleiðslu var haldinn 30.
nóv. í Reykjavík með mjólkurbússtjórum og ráðunautum,
er fara með nautgriparæktarmál í landinu. Að honum stóð
Framleiðsluráð og Búnaðarfélag íslands, og vísast til
skýrslu búnaðarmálastjóra um fundinn, sem mér fannst
gagnlegur og spá góðu um það samstarf innan heildarsam-
taka bænda, sem nú er hafið með nýrri forustu.
Önnur nefndarstörf. Búnaðarþing 1982 kaus fjóra hér-
aðsráðunauta í kynbótanefnd til næstu fjögurra ára. Eru
aðalmenn hinir sömu og áður, þ. e. Bjarni Arason, Guð-
mundur Steindórssson, Jón Atli Gúnnlaugsson og Steinþór
Runólfsson. Stjórn Búnaðarfélágsins skipaði mig áfram
formann nefndarinnar. Nefndin hefur komið saman árs-
fjórðungslega hin síðari ár, og var svo áfram. Voru fundir
hennar haldnir í Reykjavík nema sumarfundurinn, sem
haldinn var á Nautastöðinni á Hvanneyri 6. sept. Ritari