Búnaðarrit - 01.01.1983, Page 74
68
búnaðarrit
landi á kostnað Nautastöðvarinnar. Einn geymslutankur
Nautastöðvarinnar verður framvegis staðsettur þar.
Ég þakka öllum ánægjuleg samskipti á árinu.
Ritað (janúar 1983,
Diðrik Jóhannsson
IV. Uppeldisstöðin í Þorleifskoti.
í ársbyrjun 1982 var 41 nautkálfur í uppeldi á stöðinni. 23
voru sendir á Nautastöðina á Hvanneyri á árinu og 8 voru
felldir. 37 kálfar voru teknir inn á stöðina á árinu, þar af 3
fæddir 1981. í árslok voru því 47 nautkálfar á stöðinni og
hafa þeir ekki í annan tíma orðið fleiri, en af þeim bíða 11
flutnings að Hvanneyri, og 3 bíða förgunar. Að jafnaði
voru 37 naut á stöðinni.
Frá því rekstur stöðvarinnar hófst þar til nú hafa 150 naut
verið tekin á hana. Af þeim hafa 69 verið send að
Hvanneyri og 34 verið felld. Þau naut, sem send voru að
Hvanneyri á árinu, voru: Varmi 80021, Trölli 80022,
Gámur 80023, Geitir 80030, Héðinn 80032, Hvítkollur
80036, Tangi 80037, Brestur 80038, Reykur 81002, Kveikur
81003, Templari 81004, Magni 81005, Ábóti 81006, Vargur
81008, Krauni 81009, Dreki 81010, Lopi 81014, Göltur
81015, Aðall 81016, Hólmur 81018, Svali 81019, Örvar
81031 og Kóngur 81027.
Stefnt var að því að taka 40 naut inn á stöðina á árinu.
Þetta náðist þó ekki alveg, enda þótt í stöku tilvikum væri
slakað ögn á kröfum til nautsmæðra. Þetta hefur það
óneitanlega í för með sér, að ekki er hægt að grisja sem
skyldi úr þeim nautahópi, sem tekinn er í notkun.
Á árinu skiptust nautin þannig eftir landshlutum: Af
Norðurlandi komu 14,12 af Suðurlandi, 9 af Vesturlandi og
2 af Austurlandi. Aldur nautanna við komu var 9—59