Búnaðarrit - 01.01.1983, Page 173
BÚNAÐARÞING
167
Forseti þingsins, Ásgeir Bjarnason, formaður Búnaðar-
félags fslands, bauð þingfulltrúa velkomna til þings. Pá
bauð hann velkominn forseta íslands, Vigdísi Finnboga-
dóttur, og þakkaði henni þann heiður, er hún sýndi
Búnaðarþingi að vera við setningu þess. Hann bauð
velkominn Pálma Jónsson, landbúnaðarráðherra,
Steingrím Hermannsson, samgönguráðherra, svo og aðra
gesti, en mikið fjölmenni var samankomið við þingsetn-
ingu.
Því næst minntist forseti þriggja manna, er látizt höfðu,
síðan síðasta Búnaðarþing sat að störfum, og mælti á þessa
leið:
Dr. Kristján ElcLjárn, fyrrverandi forseti íslands, andaðist
þann 14. september síðast liðinn. Þó að ævistarf hans væri
unnið á öðru sviði en við landbúnað, er mér bæði rétt og
skylt að minnast hans hér, svo mjög sem hann unni búskap
og sveitalífi og sýndi það við fjölmörg tækifæri.
Kristján var fæddur og uppalinn í íslenzkri sveit og var
alla tíð tengdur uppruna sínum sterkum böndum. Það átti
þó ekki fyrir honum að liggja að ílengjast í sveitinni, heldur
haslaði hann sér völl á vettvangi íslenzkra menningarmála,
sögu og bókmennta, þar sem náin tengsl hans og gagnger
kunnugleiki á þjóðlífinu gaf honum trausta fótfestu og
sköpuðu honum þær vinsældir, sem sjaldgæfar mega teljast,
meðan hann enn gegndi embætti þjóðminjavarðar.
Á þeim árum ferðaðist hann mjög mikið hér innanlands
vegna starfsins og varð svo gagnkunnugur byggðum lands-
ins og fólkinu, sem þar býr, að óhætt er að segja að hvar
sem hann fór, var því líkast, að hann væri meðal sveitunga
sinna og fornvina.
Kosning hans til forseta lýðveldisins árið 1968 sýndi mjög
glögglega, hvern hug þjóðin bar til hans þá þegar. Og víst er
það líka, að á 12 ára forsetaferli hans slaknaði aldrei á þeim