Búnaðarrit - 01.01.1983, Page 263
BÚNAÐARI’ING
257
ins, þar sem gróður og jarðvegur er víða mjög viðkvæmur,
en að hálendinu myndi þessi akstur fyrst og fremst beinast.
Þingið bendir á, að sú umferð ökutækja, sem nú þegar er
um hálendið, hefur víða valdið verulegum skemmdum.
Hætt er við, að slík keppni, sem nú er til umræðu, myndi
leiða af sér stóraukna, skipulagslausa umferð ökutækja um
hálendið, m. a. til æfinga í torfæruakstri.
Búnaðarþing átelur þau vinnubrögð, sem viðhöfð hafa
verið varðandi allan undirbúning að fyrirhuguðum rall-
akstri á komandi sumri, þar sem keppnin er undirbúin og
kynnt víða um heim löngu áður en sótt er um leyfi til þeirra
lögformlegu aðila, sem leyfin veita, og bendir á, að umsókn
um slíkt leyfi barst dómsmálaráðuneytinu fyrst hinn 25.
febrúar s. 1., hvað þá, að málið hafi verið kynnt viðkom-
andi lögreglustjórum og sveitarstjórnum.
Því beinir þingið áskorun til dómsmálaráðherra, að leyfi
til fyrirhugaðrar alþjóðarallaksturskeppni á hálendi Islands
á komandi sumri verði ekki veitt nema örugglega verði séð
fyrir því, að slík keppni, og það sem henni fylgir, valdi ekki
skaða á landi og gróðri, og raski ekki um of friði á öræfum
og afréttum.
Þingið leggur mikla áherzlu á, að sýslumönnum og
umráðamönnum afrétta í hlutaðeigandi sýslum verði greint
rækilega frá öllum undirbúningi og framkvæmd þessarar
rallkeppni, og tryggð verði það öflug löggæzla, meðan
keppni stendur yfir, ef leyfð verður, að örugglega verði
farið eftir settum reglum í hvívetna.
Mál nr. 58
Erindi Búnaðarsambands Suður-Þingeyinga um ákvæði
vegalaga og reglugerðar um kostnað við viðhald girðinga
meðfram vegum um lönd bœnda.
Málið afgreitt með eftirfarandi ályktun, sem samþykkt var
með 23 samhljóða atkvæðum: