Búnaðarrit - 01.01.1983, Side 293
LANDBÚNAÐURINN
287
1982 1981 1980
Tómatar ....................................... 610 520 500
Gúrkur ........................................ 402 395 370
Hvítkál ....................................... 310 344 300
Blómkál ....................................... 100 125 120
Gulrætur....................................... 111 116 140
Paprika ......................................... 55 22 20
Búfjáreign og búfjárframleiðsla. í ársbyrjun 1982 var bú-
fjáreign landsmanna 60.366 nautgripir, þar af 32.769 mjólk-
urkýr, 794.644 sauðkindur, 52.999 hross, 1494 svín, 270.695
alifuglar, 8.275 minkar og 1910 refir.
í árslok 1982 var bústofninn 64.435 nautgripir, þar 32.845
mjólkurkýr, 747.701 sauðkind, 53.650 hross, 1923 svín,
292.621 alifugl, um 8.320 minkar og 6000 refir. Á árinu
fjölgaði nautgripum í heild um 6,7%, mjólkurkúm fjölgaði
aðeins eða um 0,2%, sauðfé fækkaði um 5,9%, framtöldum
hrossum fjölgaði um 1,2%, svínum virðist hafa fjölgað um
30,2% og alifuglum um 8,1%.
Mikil aukning varð á loðdýrastofninum í heild og fjölgaði
refum um 314%, en hins vegar stóð minkastofninn í stað,
en í tölunni eru um 2000 minkar, sem búið var að kaupa
vegna niðurskurðar og stofnskipta.
Það sem hér fer á eftir um framleiðslu búfjárafurða er
samkvæmt upplýsingum Framleiðsluráðs landbúnaðarins.
Sumar tölur eru áætlaðar.
Sauðfjárslátrun. Slátrað var í sláturhúsum 941.749
sauðkindum, 837.551 dilk og 104.198 kindum fullorðnum.
Er þetta 56.524 dilkum færra en árið áður, en 9.552
fullorðnum kindum fleira en haustið 1981, en þá var einnig
fækkun á ásetningi. Meðalfall dilka reyndist 13,77 kg og er
það 0,12 kg meiri þungi en haustið áður, en þá var fallþungi
með lakara móti.
Kindakjötsframleiðslan varð nú 13.766,5 lestir og er það
457,6 lestum minna en árið áður. Dilkakjöt varð 11.537,7