Búnaðarrit - 01.01.1983, Page 294
288
BÚNAÐARRIT
lestir, sem er 664,8 lestum minna en 1981, og kjöt af
fullorðnu 2.021,5 lestir, sem er 207,3 lestum meira en 1981.
Nautgripaslátrun varð nokkru minni en árið áður. Slátrað
var 22.027 nautgripum á móti 25.080 gripum 1981. Innlagt
nautakjöt nam 2.130,9 lestum á móti 2.266,6 lestum 1981.
Talið er að slátrað hafi verið 8 574 hrossum á s.l. ári, en 8 200
árið áður, og að hrossakjöt hafi numið 946,1 lest á móti
911,2 lestum 1981.
Talið er að slátrað hafi verið 16.954 svínum og að kjöt af
þeim hafi numið 947,9 lestum.
Innvegin mjólk og mjólkurneysla. Innvegin mjólk til mjólk-
ursamlaganna árið 1982 nam 104.572.474 lítrum á móti
102.958.972 lítrum árið 1981. Aukning nam því um 1,6
millj. lítra eða 1,6%.
Nýmjólkursala varð aðeins minni árið 1982 en árið áður,
42.387.162 lítrar á móti 44.458.629 lítrum, eða um 4,7%
minni. Hins vegar seldust á árinu 1982 3.627.796 lítrar af
léttmjólk á móti 841.507 lítrum árið áður. Þannig jókst
heildarmjólkursalan árið 1982 um 1,6% miðað við árið
áður.
Á árinu 1982 varð 2,6% aukning í rjómasölu og 10,6%
aukning í skyrsölu, en sala á undanrennu dróst saman um
26,2%.
Smjörframleiðslan árið 1982 nam 915.913 kg á móti
964.116 kg árið áður. Samdráttur nam því 5%. Smjörsalan
nam hins vegar 1.088.197 kg, og hefur því gengið mjög á
birgðir, sem í lok ársins námu aðeins 192.970 kg.
Ostaframleiðslan 1982 nam 2.619.247 kg á móti
2.829.976 kg árið áður. Samdráttur nam því 7,4%. Árið
1982 varð 9,7% aukning í ostasölu innanlands, 1.636.254 kg
á móti 1.490.926 kg árið áður. Birgðir osta í lok árs voru því
nokkuð minni en árið áður þrátt fyrir talsvert minni
útflutning.
Loðdýraræktin. Um áramótin voru starfandi 86 loðdýrabú
á landinu öllu og höfðu 57 ný bú bæst við á árinu.