Búnaðarrit - 01.01.1983, Side 364
358
BÚNAÐARRIT
Niðurstöður.
Gögnin, sem safnað var á árunum 1959—1970, eru af
mælingum á 955 tvílembingshrútum undan 131 hrút, í
afkvæmaprófum á þessu tímabili. Eftirtalin mál voru tekin
á lambhrútunum fyrir slátrun.
1) Ummál brjóstkassa; mælt með málbandi aftan við
herðablað.
2) Breidd spjaldhryggjar; mælt með málbandi um miðjan
spjaldhrygg.
3) Legglengd vinstri framfótar, mæld frá efri brún leggjar
að leggjarhaus með millimetrakvarða.
4) Stig, frá 1 (lakast) til 5 (best), voru gefin fyrir holdafar á
spjaldhrygg og í lærum. Nákvæmni stigagjafar var upp á
V3 úr stigi.
Mælingum þeim, sem fram fóru á föllunum, er lýst í
annarri grein í riti þessu.
Við úrvinnslu gagnanna voru mál og stig leiðrétt fyrir
fallþunga lambanna, og var notuð línuleg leiðrétting í
fervika- og samvikagreiningu (analysis of variance/covari-
ance). Marktækur munur milli hrúta kom fram á öllum
eiginleikum, sem til uppgjörs voru teknir. 1. tafla sýnir
leiðrétt meðaltöl mála, stiga og kjöthlutfalls og flokkunar í
sláturhúsi, ásamt svipfarsfráviki, arfgengi og skekkju þess.
1. tafla. Meðaltöl, svipfarsfrávik (op) og arfgengi (hJ) ásamt
skekkju (SE).
Mcðal-
Eiginleiki tal op h2 SE
Ummál brjóstkassa, cm 74,90 2,14 0,35 0,12
Breidd spjaldhryggjar, cm 17,32 0,75 0,12 0,10
Lcngd lcggjar. mm 117,1 3,89 0,64 0,14
Stig fyrir bakhold 2,79 0,59 0,59 0,13
Stig fyrir lærahold 2,75 0,69 0,47 0,12
Kjöt % 38,64 1,81 0,60 0,13
Flokkun í sláturhúsi 1,59 0,50 0,36 0,12