Búnaðarrit - 01.01.1983, Page 392
386
BÚNAÐARRIT
Á síðara tímabilinu hefur færst í vöxt að vigta kjöt
blautvigt (volgt, nýþvegið), en þá er fallþungi leiðréttur
fyrir því, þannig að dregið er frá fyrir rýrnun áður en
fallþungi er gefinn upp. Hér er því um kaldvigt að ræða. Frá
1978 hefur nýrmör verið tekinn úr nær alls staðar. Aðeins
lítill hluti útflutts dilkakjöts er vigtaður með nýrmör (kjöt
sem fer til Færeyja), eða um 6% af heildarkjötmagninu.
Fyrir 1978 var nýrmör vigtaður í verulegum hluta falla.
Vitað er hvaða hús höfðu leyfi til útflutnings á þessum
árum, en þau verkuðu kjöt, sem var hæft til útflutnings, og
vigtuðu með nýrmör. Með því að athuga hversu mikil
slátrunin var í þessum húsum má áætla, hve mikill hluti
kjötsins var veginn með nýrmör. Mun samkvæmt því láta
nærri, að um 30% falla hafi verið vegin með nýrmör.
Niðurstaðan er þá sú, að á fyrra tímabilinu hafi nýrmör
verið í um 60% falla, en á því síðara í um 40% í 6 ár, en 6% í
4 ár eða um 26,4% að meðaltali allan tímann.
Nú er einnig vitað, að áður var reiknað með að nýrmör
væri um 5,5% af fallþunga, en nú er reiknað með 4,8%. Ég
hefi tilhneigingu til að álíta að þetta geti verið rétt. Sé svo,
þá var nýrmör af 13,5 kg faili 1934—’43 sem hér segir:
13,5 x 5,5 x 0,6
105,5
’= 0,422 kg
í hverju falli miðað við að 60% hafi verið vigtuð með
nýrmör.
1972—’81: 14,29 x 4,8 x 0,264
104,8
= 0,173 kg,
í hverju falli miðað við að 26,4% falla væru vigtuð með
nýmör.