Búnaðarrit - 01.01.1983, Page 434
428
BÚNAÐARRIT
Innifóðrun.
Innifóðrun sláturlamba getur einnig komið vel til greina og
er kannski mikilvægust sem öryggisráðstöfun, þar sem
veður geta hamlað beit á haustin.
A Skriðuklaustri og Möðruvöllum hafa verið gerðar
tilraunir með innifóðrun og tekist misjafnlega (21). Nokkr-
ar niðurstöður úr þessum tilraunum eru sýndar í 3. töflu og
er árangurinn mjög misjafn. Þannig virðast graskögglar eða
næpur ekki gefa nægilega góðan árangur. Hey og
kjarnfóðurgjöf, þ. e. fóðurbætir, síldarmjöl eða fiskimjöl,
gáfu betri árangur, þó ekki yrði hann jafn góður og á
grænfóðurbeit. Þessar tilraunir sýna, að hægt er að láta
lömb þrífast á innigjöf, en mikilvægt er að gæta þess, að
næringarþörfum lambanna, svo sem próteinþörfum, sé
fullnægt. Það er því sjálfsagt að fóðra lömb inni þegar veður
hamlar beit.
3. Gœði afurðanna.
Fitusöfnun. Eins og komið hefur fram, þá hefur beit
sláturlamba á ræktað land einnig áhrif á gæði afurðanna. í
tilraun á Hesti (13) varð breyting á nokkrum vöðvum og
yfirborðsfitu í skrokknum við kálbeit. Bakvöðvinn og vöðvi
á síðu þykknuðu. Einnig þykknaði yfirborðsfitan, en varla
það mikið, að það sé til skaða. Þetta hefur komið fram í
fleiri tilraunum á Hesti (17, 19).
Ef litið er á breytingar á vöðvum, fitu og beinum í föllum
þeirra lamba, sem beitt var á grænfóður eða fóðruð voru
inni fyrir slátrun á Skriðuklaustri (22) kemur í ljós, að
vöðvarnir rýrnuðu í lömbunum, sem fóðruð voru inni, sem
gæti bent til þess, að fóðrið, sem þau fengu, hafi verið of
próteinsnautt, eða að lömbin hafi ekki étið nóg. Á græn-
fóðurbeit uxu vöðvar, fita og bein aftur á móti verulega.
Það er athyglisvert að vöðva- og fituaukningin var svipuð,
en beinaaukningin eðlilega nokkru minni. Þetta sést ljós-
lega í 4. töflu (23), þar sem tæplega helmingur af þeirri