Búnaðarrit - 01.01.1983, Page 459
VÖXTUR, PROSKI OG KJÖTGÆÐI SAUÐFJÁR 453
Tafla 2 sýnir þær breytingar, sem urðu á líkamanum í
heild á haustbeitinni. Allar tölurnar eru meðaltöl hrúta og
gimbra, einlembinga og tvílembinga. Lömbin þyngdust á
fæti um 31,5% (10 kg), en líkaminn, þ. e. að frádreginni
gæru og iðrainnihaldi, þyngdist um 44%. Munurinn stafar
af minnkandi kviðfylli. Skrokkurinn jók hlutdeild sína úr
56,0% í 57,5% að jafnaði, en samsvarandi fallprósenta (%
af þunga á fæti) hækkaði úr 39,9% í 43,3%. Aðrar
breytingar voru þær helstar, að hlutfall hauss, fóta, melt-
ingarvegar og brjóstholslíffæra fór lækkandi, en lifur og
inör þyngdust mest.
Þannig þyngdust brjóstholslíffærin aðeins um 12% með-
an lifrin þyngdist um 80% og netja + garnmör um 97%.
Rétt er að taka fram, að lifrin er bráðþroska líffæri, en
ákaflega næm fyrir sveiflum í næringu, og hin mikla þynging
í þessari rannsókn stafar af því, hve fóðurkálið er næringar-
ríkt (6). Sá munur, sem fram kemur á hálöppum og
láglöppum er í flestum tilfellum marktækur, þegar tillit er
tekið til allra sláturhópanna. Að jöfnum líkamsþunga
reyndust láglapparnir hafa 4% þyngri skrokk og 18%
þyngri mör, en á móti kom 7% þyngri haus, 18% þyngri
fætur, 12% þyngri brjóstholslíffæri og 8% þyngri meltingar-
vegur í hálöppum. Árangur ræktunarinnar að þessu leyti
kemur fram í hærri fallprósentu, en samtímis hefur innri
fitusöfnun aukist.
Vöxtur og þroski skrokksins.
2. línurit sýnir vaxtarferil skrokksins og aðalvefjanna
þriggja, beina, vöðva og fitu. Vöxturinn, í grömmum á dag,
er sýndur í 3. töflu fyrir þrjú tímabil, þ. e. frá fæðingu til 6
vikna, frá 6 vikum til 16 vikna (1. september) og frá 16
vikum til 24 vikna. Rétt er að ítreka, að fyrstu 16 vikurnar
gengu lömbin undir ánum við fremur rýr gróðurskilyrði, en
síðustu 8 vikurnar var þeim beitt á fóðurkál. Vöxturinn var