Búnaðarrit - 01.01.1983, Page 464
458
BÚNAÐ ARRIT
Lögun skrokksins.
Fyrir krufningu voru tekin 9 skrokkmál til lýsingar á lögun
skrokksins, beinabyggingu hans og holdfyllingu. Hvað
varðar lýsingu á þessum málum vísast til ritgerðar Stefáns
Sch. Thorsteinssonar. Erfðir á vaxtarlagi og kjötgæðum
með sérstöku tilliti til legglengdar. Bent skal á, að í þessari
rannsókn voru skrokkarnir mældir eftir að hafa verið
frystir, en frostið lyftir fitunni, og því eru öll þykktarmál,
einkum þau er mæla fituþykkt, nokkuð ýkt, miðað við
mælingar á ófrosnu kjöti.
5. tafla sýnir samanburð á lögun hálappa og láglappa við
12 kg, 16 kg og 20 kg fallþunga, svo og þá hlutfallslegu
aukningu einstakra mála, sem varð samfara 8 kg þyngingu á
falli, frá 12 til 20 kg.
5. tafla. Lögun skrokksins. — Þroskabreytingar og munur á
vaxtarlagsgerðum.
Mál Teg. 12 kg fall (mm) 16 kg fall (mm) 20 kg fall (mm) %-aukning frá 12—20 kg fallþunga
Lcngd lang- Hál. 196 211 225 15
lcggjar —T Lágl. 176 188 199 13
Klofdýpt — F Hál. 268 283 295 10
Lágl. 226 238 249 10
Vídd um Hál. 214 231 246 15
malir — G Lágl. 217 236 252 16
Dýpt brjóst- Hál. 250 272 291 16
kassa — Th Lágl. 233 252 270 16
Vídd brjóst- Hál. 151 167 181 20
kassa — V Lágl. 160 181 201 26
Skrokklengd — L Hál. 557 595 630 13
Lágl. 521 558 589 13
Brcidd bak- Hál. 47,2 52,5 57,3 21
vööva — A Lágl. 45,9 50,8 55,3 20
Þykkt bak- Hál. 20,6 23,0 25,1 22
vööva — B Lágl. 24,1 26,7 28,7 19
Flatarmál Hál. 974 1206 1441 48
bakvöðva — A x B Lágl. 1110 1353 1592 43
Fituþykkt á Hál. 1,5 2,7 4,3 187
baki — C Lágl. 2,9 3,9 5,0 72
Fituþykkt á Hál. 4,2 6,5 9,3 121
síöu — J Lágl. 7,7 10,2 12,9 68
(Mismunur á hál. og lágl. cr marktækur í 99% tilfclla, ncma hvaö snertir G-máliö).