Búnaðarrit - 01.01.1983, Page 490
484
BÚNAÐARRIT
fallþungi sé ekki arfbundinn vaxtarlagi og ætti því að vera
óhætt að velja líflömb með ákveðnu vaxtarlagi. Einnig skal
þess getið, að arfgeng fylgni milli hinna einstöku hlutfalla
er jákvæð og fremur há, sem bendir til þess, að hagstæð
lögun á skrokkhlutum fylgist að.
Hér skal sérstaklega vakin athygli á hinni jákvæðu fylgni
legglengdar við fallþunga vegna mikilvægis leggjarins í
kynbótum fyrir bættu vaxtarlagi og kjötgæðum. Ef um væri
að ræða einhliða úrval fyrir stuttum legg myndi það eflaust
leiða til minni fallþunga er tímar líða. Þess vegna er
höfuðnauðsyn, þegar valið er fyrir stuttum legg, að taka
jafnframt tillit til þunga skepnunnar og þroska hennar í
heild og samræmis í vaxtarlagi. Því gildir að finna þann
einstakling í hjörðinni, sem sameinar flesta þá kosti, sem
leitað er eftir. Blint og einhliða úrval fyrir einum ákveðnum
eiginleika, þegar bæta á með því marga aðra eiginleika í
senn, eins og t. d. vaxtarlag og kjötgæði, leiðir vafalítið til
ófarnaðar og er ekki vænlegt til jákvæðs árangurs, allra síst í
jafn flóknu líffræðilegu fyrirbæri og lifandi vera er.
Til að gera sér í hugarlund áhrif legglengdar á vaxtarlag
og kjötgæði (sjá 2. töflu), má hugsa sér tvo jafnþunga
dilkaskrokka með misjafnlega langa leggi. Það fallið, sem
lengri leggina hefði, er líklegra til að hafa lengri langlegg,
meiri klofdýpt, minni holdfyllingu í afturhluta skrokksins
(lærum og mölum), dýpri og þynnri brjóstkassa, lengri
skrokk og beinaþyngri, bakvöðvann nokkru breiðari en
töluvert þynnri og lögun hans því verri (þunnur í hlutfalli
við þykkt). Yfirborðsfita á baki svipuð, en mest fituþykkt á
síðu og síðan sjálf þynnri. Þetta er auðlesið úr 2. töflu.
Vaxtarlag þess falls, sem styttri leggina hafði, er í algjörri
andstæðu við þessa lýsingu. Við styttingu leggjarins styttast
jafnframt beinin í skrokknum og léttast, en vöðvar allir
þykkna, en nokkur hætta er á of mikilli fitusöfnun efst á
síðu, en vert er að benda á, að fituþykkt á baki og legglengd
eru nánast ótengdir eiginleikar.