Búnaðarrit - 01.01.1983, Síða 523
KJÖTGÆÐl OG SALA Á KINDAKJÖTl
517
Tveir dilkaskrokkar af I. flokks kjöti vigtuðu 25 kg á kr.
39,54 per kg. Ur þeim fáum við af beinlausu kjöti 17 kg á
kr. 58,15 per kg. Tveir dilkaskrokkar af 3. flokks kjöti
vigtuðu 17,1 kg á kr. 33,56 per kg. Úr þeirn fáum við af
beinlausu kjöti 11 kg á kr. 52,17 per kg. Þessi ntismunur á
því magni, er kemur út þegar þrír höfuðflokkarnir eru
beinaðir út til nýtingar og sölu á beinlausu dilkakjöti, sem
fer alltaf í vöxt, og hin dýra vinna á lélegasta hluta þess,
sýnir, að hagstæðast er að fá það besta í úrbeinun. Enn
fremur kemur í ljós, sérstaklega við úrbeiningu á lærum,
þegar kjöthimnan er algjörlega skorin frá vegna notkunar í
snitsel, að hintnan er teygjanleg eins og fíngerður lopi með
ullarhárum, og stafar þetta eflaust af því, hve erfitt er að
þrífa kjötið eftir fláningu sem skyldi.
Reyking og söltun á dilkakjöti er alltaf stór liður í sölu
okkar á dilkakjöti. Tökum sem dæmi, að við höfum reyk-
ofna, sem taka um 1200 kg af tilskornu reykkjöti eða sem
næst 320 stk. í hverja verkun, og er það minnsti viku-
skammtur. Enn fremur erum við með mikla söltun á dilka-
kjöti, og er það verkað í stór stálkör, sem taka 500 kg hvert,
og enn fremur í plastkúta, sem taka 35 kg. Við verkun á
saltkjöti í plastkúta þarf að gæta þess vel að loka þeim ekki
fyrr en 2—3 dögurn eftir söltun og gæta vel að áfyllingu
þannig, að pækill sé vel yfir og ekkert auka loftrúm þegar
lokin eru fest á. Verkun eða brot á saltkjöti tekur um 10
sólarhringa við hæfilegt hitastig.
I þá saltblöndu, er við notum við þessar tvær framan-
skráðar vörutegundir, er notuð saltupplausn, sem santan-
stendur af 400 1 af vatni, 50 kg af salti, 3 kg af strásykri og
450 gr af saltpétri, og hefur þetta verið gert með góðum
árangri.
Þegar við hugsum til þess, að á tímabilinu 10. september
til 20. október eru leidd til slátrunar í kringum ein milljón
sláturdýra, kemur manni til hugar, hvort ekki mætti dreifa
þessari slátrun eitthvað. Sláturdýrin eru 120—140 daga