Búnaðarrit - 01.01.1986, Page 235
BÚNAÐARÞING
213
16. gr.
Hafi jarðabætur, sem framlags geta notið skv. lögum
þessum, verið unnar af búnaðar- eða ræktunarsamböndum,
er Búnaðarfélagi íslands heimilt að halda eftir af jarðabóta-
framlögum upphæð til greiðslu á vinnuskuldum, enda hafi
borizt um það krafa frá stjórn viðkomandi sambands.
III. KAFLl
Almenn ákvœði.
17. gr.
Þyki héraðsráðunaut eða trúnaðarmanni, að jarðabóta-
framkvæmd sé ekki í samræmi við ákvæði laga þessara og
reglugerðir skv. þeim, hefur hann rétt til að neita úttekt og
þá um leið framlagi til hennar. Ágreiningi, sem upp kann
að koma þess efnis, skal skotið til Búnaðarfélags íslands,
sem sker úr honum. Stjórn Búnaðarfélags íslands er rétt að
leita úrskurðar landbúnaðarráðherra í þeim málum, sem
hún telur orka tvímælis.
18. gr.
Sá sem segir héraðsráðunaut, trúnaðarmanni eða Búnað-
arfélagi íslands vísvitandi rangt til um framkvæmdir og gerð
þeirra mannvirkja, er ríkisframlags eiga að njóta samkvæmt
II. kafla, eða brýtur að öðru leyti ákvæði þessara laga í
einhverju því, er verulegu máli skiptir, skal sæta sektum frá
10.000 — 100.000 kr., og ef það er gert í eiginhagsmuna-
skyni, má þyngja refsinguna um helming.
Brjóti héraðsráðunautur, trúnaðarmaður eða starfsmað-
ur Búnaðarfélags íslands þær fyrirskipanir, er honum eru
settar í erindisbréfi, eða fari ekki eftir fyrirmælum laga
þessara eða reglugerðar, skal hann sæta sömu refsingu, er
að ofan getur, nema þyngri refsing liggi við samkvæmt
öðrum lögum. Með mál út af brotum á þessari grein skal
farið að hætti opinberra mála.