Búnaðarrit - 01.01.1986, Page 264
242
BÚNAÐARRIT
I 6. gr. fjárlaga fyrir árið 1986 er heimildarákvæði til
niðurfellingar á aðflutningsgjöldum og söluskatti af fjár-
festingarvörum til fiskræktar. í 2. tölulið 22. gr. laga um
lax- og silgungsveiði segir meðal annars: „Fiskrækt telst
friðun fisks, umbœtur á lífsskilyrðum fisks, flutningur fisks í
veiðivatn, auðveldun á gönguleiðum fisks, eftirlit með veiði
og annað, sem lítur að aukningu fiskstofns eða eldi hans.“
Búnaðarþing lítur svo á, að silungsveiðar falli undir
skilgreiningu laganna varðandi fiskrækt, sbr. „aukningu á
viðhaldi fiskstofnanna og umbætur á lífsskilyrðum fisks.“
Því telur þingið, að fjárfestingarbúnaður sá, sem nota
þarf við silungsveiðar, sem stundaðar eru í atvinnuskyni,
falli undir framangreint heimildarákvæði í 6. gr. fjárlaga
1986.
Af búnaði og tækjum, sem hér um ræðir, má nefna báta,
utanborðsmótora, verkunarhús, kæli- og frystiklefa, ísvél-
ar, vélsleða, tengivagna og annað, sem sýnt er fram á, að sé
nauðsynlegt til atvinnuveiða á viðkomandi stað.
Búnaðarþing væntir þess, að stjórn Búnaðarfélags ís-
lands sinni ötullega að koma þessu máli fram, svo að
silungsveiðar sem búgrein sitji við sama borð og fiskeldi og
loðdýrarækt, hvað fyrirgreiðslu varðar.
Mál nr. 30
Erindi Önnu Guðrúnar Pórhallsdóttur um nauðsyn þess að
koma á reglum um gœðamat og gœðaeftirlit á silungi.
Málið afgreitt með eftirfarandi ályktun, sem samþykkt var
með 24 samhljóða atkvæðum:
Búnaðarþing felur stjórn Búnaðarfélgas íslands að afla
upplýsinga um, hvaða kröfur einstakir markaðir gera
varðandi gæði silungs og verkun hans.
A grundvelli þeirra upplýsinga verði gerðar tillögur um
samræmt gæðamat á þessari afurð, sem byggja mætti á við
setningu reglugerðar um mat á silungi.