Búnaðarrit - 01.01.1986, Side 269
BÚNAÐARÞING
247
Kosningu hlutu:
Aðalmenn: Bjarni Arason,
Guðmundur Steindórsson,
Jón Atli Gunnlaugsson,
Sveinn Sigurmundsson.
Varamenn: Þórður Sigurjónsson,
Stefán Skaftason,
Bjarni Hákonarson,
Kristján B. Jónsson.
2. Kosning tveggja héraðsráðunauta í sýningarnefnd
hrossa samkvæmt 34. grein búfjárrœktarlaga.
Kosningu hlutu: Guðmundur Sigurðsson,
Steinþór Runólfsson.
Á 18. fundi þingsins, sem haldinn var sama dag, fóru
fram þingslit. Ásgeir Bjarnason, forseti Búnaðarþings,
ávarpaði þá þingfulltrúa og gesti með þessum orðum:
„Búnaðarþingi er að ljúka. Það hefur staðið í 14 daga,
haldið 18 fundi og afgreitt 30 mál af 33, sem fyrir það voru
lögð. Oft hafa málin verið fleiri. En að þessu sinni voru þau
mjög yfirgripsmikil. Tveir umfangsmiklir lagabálkar voru
til athugunar og afgreiðslu. Það eru frumvarp til jarðrækt-
arlaga, sem milliþinganefndir hafa undirbúið, og frumvarp
til búfjárræktarlaga, sem líka var undirbúið af milliþinga-
nefnd. Þótt frumvörp þessi, ef að lögum verða, eigi áfram
að þjóna hefðbundnum búskap, þá er jafnframt tekið
fyllsta tillit til breyttra tíma og nýjunga í búnaðarháttum.
Þá fjallaði þingið um tillögu um kynbætur sauðfjár og
skýrslu milliþinganefndar um bætta verzlunarhætti við sölu
á lambakjöti. Skýrslan er ýtarlega samin og fjallar um
margt, sem nauðsynlegt er að hafa í huga við framleiðslu
kjöts, slátrun fjár, kjötmat og meðferð alla og sölu á
lambakjöti. Þar er bent á ýmislegt, sem gæti aukið sölu og
neyzlu lambakjöts. En eins og mörgum er kunnugt, þá
hefur neyzla kindakjöts dregizt saman hin síðari ár.