Heilbrigðismál - 01.01.1969, Page 9
Heilablóðfall
í GAMLA daga þýddi heilablóðfall eða slag endinn á
starfsferli og athöfnum manna, en þannig er það
ekki núorðið. Nýtízkumeðferð kemur sjúklingnum
iðulega á fætur svo að þeir geta lifað lífinu á næst-
um eðlilegan hátt. Heilablóðfall er svo algengt nú á
dögum, að flestir vita, hvað þar er um að ræða. Það
er kunn saga, hvernig roskið fólk brotnar allt í einu
niður og annar helmigur líkamans lamast. Því
verður erfitt um mál o. s. frv. Þessum tilfellum
hefur fjölgað stórkostlega á seinni árum og það er
ekki ósennilegt, að þau fari enn í vöxt. Sem þver-
sögn mætti segja, að þessa aukningu mætti færa á
reikning læknavísindanna. Heilablóðfall kemur
aðallega fyrir hjá rosknu fólki og það er því eðli-
legt, að þegar meðal-aldurinn vex verða fleiri og
fleiri að lokum slegnir þessum sjúkdómi. Fólk fyrri
alda gat þó ekki hrósað sér af því, að hafa verið
ónæmt fyrir heilablóðfalli. En sannleikurinn er sá,
að fyrri alda fólk lifði sjaldnast nógu lengi til að fá
slag. Og okkar samtíð verður að vera við því búin,
að heilablæðingunum fjölgi. Það er gjald, sem hún
verður að greiða fyrir lengingu meðal-aldursins og
framfarir læknavísindanna. En við þurfum ekki
FRÉTTABRÉF UM HEILBRIGÐISMÁL
endilega að taka því skilyrðislaust, sem ekki verður
umflúið, án þess að aðhafast neitt. Við getum öll
gengið fast fram í því, að auka þekkingu okkar á
heilablæðingunum og þannig átt þátt í að draga
úr hinum illu afleiðingum þeirra.
Hvað skeður.
Það sem fyrst og fremst skeður, er að æð í heilan-
um brestur og þannig seytlar blóð í heilavefinn eða
lokast af blóðstorku, þannig að heilinn er rændur
hluta af blóðrás sinni. f báðum tilfellum skaddast
heilavefurinn, og ástand sjúklinganna fer eftir því,
hvað mikið af vefjum heilans eyðilegjast eða
skemmist og hvað skemmdirnar eru víðtækar. Smá
blóðstorka í lítilli æð veldur ef til vill aðeins slapp-
leika í málfæri eða kemur fram sem veiklun í hendi
eða fæti. Mikil blæðing, sem orsakast af því, að
stór æð brestur, getur skaddað heilann svo, að komi
til djúps meðvitundarleysis og líf sjúklingsins sé í
bráðri hættu. Þó er í bæði skiptin um slag að ræða,
aðeins á mismunandi stigi. En hversvegna skeður
það? Hvað orsakar að blóðið hleypur og lokar blóð-
rásinni? Hversvegna bresta æðar? Svarið við þessum
9