Heilbrigðismál - 01.01.1969, Side 16

Heilbrigðismál - 01.01.1969, Side 16
Ýmsir rannsökuðu mig og spurðu mig fjölda spurn- inga. Ég man að einn sagði, að ég hefði gert það eina skynsamlega, að koma beint inn um ieið og ég fann þykkildið. Uppskurðurmn. Þeir ákváðu að skera mig upp. Til allrar ham- ingju þurfti ég ekki að bíða lengi. Það var autt pláss í konungl. spítalanum í Melbourne og eftir 3 daga var ég skorin upp. Ég var engan vegin hrædd við aðgerðina. Ég var hamingjusöm yfir undir- búningnum, sem ég fékk á leiðinni á skurðstofuna. Næsta sem ég vissi var að hjúkrunarkonan sagði við mig: „Langar yður ekki til að sjá manninn yðar?" Þá var allt um garð gengið. Það var ekki hægt að tala um miklar þjáningar. Það sem angraði mig mest, var fetillin, sem ég varð að hafa til að halda uppi handleggnum, sem var enn slappur. En reglulegar þjáningar voru ekkert vanda- mál. Ég var leið vegna þess að það hljóp dálítil vilsa í sárið, sem hélt mér lengur á spítalanum en venju- legt er eftir svona aðgerð, en samt sem áður var ég heima innan fjögra vikna. Eftir á. Vitanlega er það mikið áfall fyrir konu að missa brjóstið. Alveg sama hvað gömul hún er. £n bráð- lega hafði ég fundið ráð til að verða eðlileg í vexti og þegar hjúkrunarkona frá Peter Mac Collins spít- alanum vitjaði mín, fór hún undir eins að tala um sérstakt gervi-brjóst. Uppskurðurinn fór ekki nærri eins illa með útlit mitt og ég hafði búizt við. Þegar ég ók strandveginn, á leiðinni heim frá SÍGARETTUAUGLÝSINGAR SÝNA ÞETTA EKKI frh. af bls. 8 mætti Iáta kvikmyndavélina líða um stofuna, til þess að áhorfendur gætu glaðzt af að sjá, hvað við höldum okkur dyggilega við uppáhaldstegundina okkar. Það er að segja, þeir okkar, sem hafa ennþá munn. Og sem lokaáhrif vildi ég stinga upp á nærmynd spítalanum, stakk það mig, að ég gæti aldrei framar borið sundföt. En það leið ekki á löngu þangað til ég hafði fundið mjög tízkulegan sundbol, sem fór mér ágætlega. Afturbatinn. Jú, ég varð að gera æfingar, eins og alls konar lyftingar og sveiflur með handleggjunum, sam- kvæmt bók sem ráðleggingastöð krabbameinsvarn- anna gefur út. Hvað mér viðvíkur, virðist ekki nein þörf á geislameðferð. Vinir fá nýjar hugmyndir. Eitt af því athyglisverða, sem hlauzt af því að ég fékk krabbamein, eru breyttar hugmyndir vina minna. - Einn nágranni okkar er lýsandi dæmi þess. Alveg nýlega fékk hún hnút á nákvæmlega sama stað og ég. Þó hún væri alveg eyðilögð út af þessu, fór hún beint til læknis síns. - Til allrar hamingju var vefjasýni frá henni neikvætt. Hún losnaði við miklar áhyggjur með því að fara beint til læknisins. Það eru í kringum 20 hús í hverfinu mínu. Þegar ég fékk kiabbameinið, held ég að allar konurnar í því hafi farið beint til læknis til eftir- lits, létu framkvæma hjá sér krabbameinsleit og þess háttar. Þar gerðu þær góðan hiut, og nú hafa þær gert sér að venju að fara reglulega í rannsókn. Allir vita að éj var með krabbamein og það var rætt um- búðalaust. Ég hefi verið stönzuð á strætisvagnastöð- inni og spurð um það. Þegar fólk sér að einhverjum sem hefur fengið krabbamein, farnast vel, lítur það sjúkdóminn allt öðrum augum, ég er hárviss um það. af reglulegum ástríðu-reykjara, sjúklingi, sem við höfðum og hélt sígarettunni við loftgatið á hálsin- um, svo að hann gæti sogið reykinn niður í lungun. Við ökum ekki í sportbílum hérna á „7 - austur". Við ökum á hjóltíkum á skurðstofuna og ef heppnin er með, ökum við þannig inn á stofuna okkar aftur. Það eru fleiri þorp í ríki krabbameinsins. Niðri á 3 eru lungun skorin burtu. Ég þakka guði, að ég hefi ekki enn þurft að leggja leið mína þangað. Bj. Bj tók saman úr Christian Herald. FRÉTTABRÉF UM HEILBRIGÐISMAL 16

x

Heilbrigðismál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.