Heilbrigðismál - 01.01.1969, Blaðsíða 19

Heilbrigðismál - 01.01.1969, Blaðsíða 19
Fjöldi fólks er lagður inn á spítala árlega til upp- skurðar vegna starblindu, eða með öðrum orðum, til þess að taka burtu augasteininn. Hann er full- komlega gegnsær undir venjulegum krigumstæðum, en getur orðið skýjaður og eyðilagt sjónina. Ástæð- urnar fyrir myndun starblindu eru óvissar að öðru leyti en því að þær virðast bundnar ellinni. Oft geta aðgerðir við henni gefið ágætan árangur. Sjúkling- urinn þarf að dveljast viku eða svo í sjúkrahúsi og vera heima í mánuð áður en hann gemr farið að nota viðeigandi gleraugu. En aðgerðin er þvingandi, bæði fyrir sjúklinginn og lækninn, og blæðingar- hættan eftir aðgerðina, sem getur eyðilagt allan ár- angur og valdið algerri blindu, er allmikil, jafnvel þótt sjúklingurinn liggi grafkyrr, sem oft tekur mjög á þolinmæði hans og úthald. Nú hefur augn- læknir í New York fundið upp aðferð til að ná augasteininum út á einfaldan og þægilegan hátt, þannig að sjúklingurinn er aftur vinnufær nokkrum dögum eftir aðgerðina. Charles D. Kelman augn- læknir segir, að við venjulega starblinduaðgerð verði að skera hálfa hornhimnuna frá og lyfta henni upp. Til að loka skurðinum þarf 6-8 sauma. Með því að nota hásveiflukanna, gerir Kelman skurð, sem er minni en 2Vz mm og hægt er að loka með FRÉTTABRÉF UM HEILBRIGÐISMÁL Hljóðbylgur til að- gerða ó starblyndu einu saumspori. Kelman gerir sprettuna við horn- himnuröndina og notar smásjárgleraugu til að fylgjast með handtökunum, smeygir tækinu inn í augnsteinshólfið, sem skilur hornhimnuna og stein- inn. Kanninn er holnál úr telanium-málmblöndu. Utan um hana er silicon-hólkur, sem festur er við háspennutæki, er stendur við hlið læknisins. Þegar nálin snertir augnsteininn, stígur Kelman á fótrofa á tækinu og nálin tekur að sveiflast með 40 þús. sveifluhraða á sekúndu, sem nægir til að ummynda augnsteininn í vökva. Þegar augnsteininum hefur verið sundrað á þenn- an hátt með nokkrum sveiflulotum, er sprautað þunnum hreinsivökva í augnsteinsholið og síðan allt sogið burtu, gegnum holið milli nálarinnar og silicon hólksins og upp um holrúmið sem liggur gegnum handfang kannans. Kelman hefur notað hásveiflur til að fjarlægja augasteina úr 50 sjúkl- ingum sl. 2 ár. Aðgerðin er enn á tilraunastigi, en Kelman heldur því fram, að starblinduuppskurður- inn geti á þennan hátt orðið smávægileg aðgerð. Og hann bætir þvi við, að hásveiflutæki mætti einnig nota til að eða eyða gallsteinum, æxlum og þykknum úr kölkuðum æðum í hjartanu og víðar. 19

x

Heilbrigðismál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.