Heilbrigðismál - 01.01.1969, Síða 22

Heilbrigðismál - 01.01.1969, Síða 22
þeir ráðþrota gagnvart langvarandi klettbeinsbólg- um og öðrum þrota í beinvef miðeyrans. Þegar skor- ið var upp vegna þessa, glataðist heyrnin oft. Þannig er því ekki lengur farið. Á síðustu árum hefur ný aðferð komið til skjalanna, sem felst í því, að allt miðeyrað er endurnýjað, bæði heyrnarbeinabrúin og hljóðhimnan. Það er ekki alltaf nauðsynlegt að gera það að öllu Ieyti. Stundum nægir að nema burm beinabrúna, meðan bólgusvæðið er skorið upp, og setja hana síðan inn aftur. En séu litlu beinin sjálf bólgin og skemmd, er skipt á þeim og önnur brú sett í staðin. Á því sviði hefur náðst beztur árangur með því að taka beinflísar úr hauskúpunni bak við eyrað. Taugaheyrnardeyfa. Þessar aðgerðir duga þeim ekki sem hafa heyrnar- deyfu, sem orsakast af taugaskemmdum, og innra- eyrað má heita Iokað Iand fyrir skurðlækninum. Aðalvopn Iæknavísindanna á þessari tegund heyrn- ardeyfu, eru varnir. Þó eru einstakar undantekning- ar. Heyrnardeyfa gemr orsakast af lokun á æð til innra-eyrans. Þær truflanir er smndum hægt að laga með meðulum, sem opna æðarnar. Heyrnardeyfu, sem orsakast af ofnæmi og sjúkdómum í skjaldar- kirtlinum, er einnig hægt að lækna, og Ménieres- sjúkdóminn, sem orsakast af þrýstingshækkun í vökvarúmum innra-eyrans, er oft hægt að lækna bæði með lyfjum og skuraðgerðum. Varnirnar em fyrst og fremst að berjast gegn hávaða og vernda fyrir honum. Það á sérstaklega við um starfsemi í ýmsum iðngreinum. Þá kemur bólusetning gegn sjúkdómum, sem geta skaðað heyrnina. Það hafa verið gerðar tilraunir með bólusetningar gegn rauð- um hundum, en þeir geta gert hið ófædda barn örkumla. Þess verður varla langt að bíða að virkt bóluefni komi í hendur læknanna og útrými þessari tegund heyrnardeyfu. Heyrnarteeki. Milljónir manna hafa góð not af heyrnartækjum, og tæki sem koma að notum fyrir smábörn eru einn- ig til. Þau er ýmist sett í hlustina, en þá berst hljóðið í gegnum hayrnarbeinin, eða við beinin bak við eyrað. Margir heyrnardaufir með skemdir í innra- eyranu skynja lága tóna betur en háa. En þá vilja hljóðin oft afskræmast í tækjunum svo þeir geta venjulega ekki notað þau. Nú hefur tekizt að búa til tæki sem bæta úr þess að nokkru leyti. Onnur óþægindi fyrir þá, sem nota heyrnartæki, eru skyndi- leg há hljóð, öskur í þotu og háir flaututónar geta valdið sárum verkjum í eyranu. Sá vandi hefur verið leystur í nýjustu tegundum heyrnartækja með sérstakri straumrás, sem rofnar þegar hljóðið hefur náð ákveðnum styrk, en sambandið kemur aftur þegar hljóðið lækkar. Það eru gerðar geysivíðtækar rannsóknir á þessu sviði og framfarir næsm 10 ára munu vafalaust setja allt í skuggann sem þegar hef- ur áunnizt, þó það sé stórkostlegt. Hingað til hefur verið erfitt að fá frekari skýringar á gámm innra- eyrans, vegna þess að ekki er hægt að fylgjast með því á lifandi fólki, sem fram fer í þessari miðstöð. En í Bandaríkjunum hafa nú verið stofnaðir eyrna- bankar og fólk getur ánafnað þeim heyrnarlíffærin. Með því móti er hægt að rannsaka vefjabreytingar undir smásjá í öllum smáatriðum og bera þær saman við sjúkdómseinkennin, sem voru fyrir hendi í lifendalífi sjúklingsins. Brátt mun hægt að sýna fram á orsakir margra tegunda taugaheyrnardeyfu, og út frá því finna Ieiðir til að Iækna hana. Þá verða einnig þeir sjúklingar leystir úr fangelsi þegnar- innar. 22 FRÉTTABRÉF UM HEILBRIGÐISMÁL

x

Heilbrigðismál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.