Heilbrigðismál - 01.07.1971, Síða 5

Heilbrigðismál - 01.07.1971, Síða 5
tekur, virðist öðrum fremur geta öðlast það, sem kallað er hamingja. Hver uppfyllt krafa hins ofdekraða elur af sér nýjar þarfir og nýj- ar kröfur, og þannig koll af kolli, þar gildir sama og um þursann: þegar eitt höfuð var höggvið af uxu þrjú í staðinn. Þegar lífsviðhorfum mannsins er svona háttað, kemur að því að hann leitar allra til- tækra ráða, að skapa sér einhvern frið, ein- hverja fróun við þeirri órósemi sem hann sífellt þjáist af, ásamt stöðugri spennu og uppnámi. Þá koma taugalyfin til skjalanna og svefnlyfin, þegar friðleysið brennur í heila og huga, nótt sem nýtan dag. Sumum gefur þetta fró um stund, en kapp- hlaupið og afbrýðisemin í annarra garð eru harðir og miskunnarlausir húsbændur í vel- ferðarríkjunum, þar veitist enginn stundleg- ur friður. Allir verða að vera á verði til að fá sem stærstan og mestan skækil af skinninu sem ríkið breiðir fyrir þá og allir toga í. Friður og hamingja á sér engan stað í landi starfsmatsins þar sem síbreytilegur tilflutn- ingur fólks stalla upp og stalla niður á sér stað. Yfirdrifin umsjá ríkisvaldsins er örugg- asta ráð, sem fundið hefur verið upp til að skapa ríkt þjóðfélag með geysilegum fram- kvæmdum, tækniþróun og lífsþægindum, en jafnframt vansæla og óhamingjusama þegna. Engin taugalyf, hversu stórvirk og stórkostleg sem þau eru, duga lengur í þessum heimi eilífra vandamála og andlegrar vanheilsu. Fólkið er síleitandi að einhverju, sem veiti því þó ekki sé nema stundarró. Börnin sem alast upp við sífellda óánægju, öryggisleysi og kapphlaup hinna fullorðnu um peninga og imynduð lífseæði eru engu betur farin en fullorðna fólkið. Sálir þeirra verða eins og kvika, þegar engin styrk og örugg hönd má vera að því vegna kapphlaupsins mikla, að leiða þau hlýlega en ákveðið sér við hönd, svo að þau læri að skynja mismun góðs og FRÉTTABRÉF UM HEILBRIGÐrSMÁl. ills. Ekkert þjakar barni eins og að skilja það ekki, og oft er það upphaf ævilangra lasta og ógæfu. Fyrst maðurinn er sjálfum sér svo ónógur væri vafalaust gott ef tækist að finna upp lyf, sem gæti skapað með honum innri frið, ham- ingju og ánægju með hlutskipti sitt, án þess að hann missti nokkurs í af sinni jákvæðu at- hafnaþrá, framtakssemi, lífsþreki og vilja til að láta gott af sér leiða fyrir sjálfan sig, sína og þjóðfélagið. Slíkt lyf er ennþá ófundið, þótt ýmsir hafi haldið sig vera á sporinu eftir því, hefur árangurinn jafnan orðið hinn hörmulegasti þegar til kastanna kom. Mörg þeirra sem dreift hefur verið um heiminn hafa reynzt hin skæðustu ávanalyf, sem hafa valdið miklu böli meðal f jölda fólks. Hamingjan hefur aldrei fallið neinum í skaut fyrir áhrif nautnalyfja eða fýknilyfja. Mörg gefa þau stundarfrið, einhvers konar gleði eða sælukennd, en sú paradísarvist stend- ur ekki lengi og hefnd þeirra á neytendum er grimmileg. Ekkert nautna eða deyfilyf hefur látið dómgreind og vitsmuni mannsins, sem neytti þess að nokkru marki, óskerta. Það gildir einu hvort það er hash, marjuana, hero- ín, morfín, ópíum, kókaín, LSD, eða hvað það nú allt nefnist. Andleg og líkamleg hrörnun hefst þegar, þó í smáum og jafnvel ógreinanleeum stíl sé í fyrstu, ásamt afskræm- ingu sálarlífsins. Það gildir einu hvert bess- ara lyfja á í hlut, þau eru öll sama markinu brennd, aðeins misjafnleiia stórvirk os hrað- virk, sama hvort þau kallast hash eða eitthvað annað. Hið hörmuleea hefur bó skeð. að ein- stakir þekktir vísindamenn hafa látið hafa eftir sér að svo sé ekki um hashið É<r skil ekki hvaðan þeim kemur slík vitneskia. Allir vísindamenn og Iæknar, sem vilja vita hið rétta, er kunnugt um. að betta er e’æpsamleg blekking. hvað sem að baki henni býr. En það voru ekki fyrst og fremst eitur og 5

x

Heilbrigðismál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.