Heilbrigðismál - 01.07.1971, Blaðsíða 24
Að lokum þetta: Stefnt er að því að fjölda-
rannsóknir í leit að leghálskrabbameini geti
náð til kvenna hvar sem þær eru búsettar á
landinu. Höfuðatriði er að ná öllum konum
með í rannsóknina, en hætta er á að aðsókn
verði dræmari þegar farið verður að endur-
taka rannsóknir í ríkara mæli en gert hefur
verið fram að þessu. En með stöðugri upplýs-
ingastarfsemi, kynningu og góðri samvinnu
milli allra sem hlut eiga að máli er von til að
vel takizt. Eins og áður segir hefur Krabba-
meinsfélag íslands unnið hér mikið og gott
brautryðjendastarf á sviði frumurannsókna.
Þetta er að vísu þröngt og takmarkað svið,
sem bundið er við leit að leghálskrabbameini
fyrst og fremst. Frumurannsóknum er hins-
vegar beitt í dag við leit og greiningu á fjölda
annarra tegunda krabbameins. Ekki er við því
að búast að Krabbameinsfélag íslands megni
að standa fyrir slíkum heildarrannsóknum.
Hins vegar er brýn þörf á því að koma á fót
aðstöðu til slíkra almennra frumurannsókna.
KRABBAMEIN í LUNGUM
frh. af bls. 13
ar um meira en 50% í 3 mánuði og sæmi-
legan, ef minnkunin er 25%-50%. Ekki er
tekið mark á minnkun, sem ekki nær 25%.
Á hinn bóginn má einnig reikna það til
tekna fyrir lyfjameðferð, þótt það komi ekki
fram sem jákvæður árangur í skýrslum unn-
um samkvæmt fyrrnefndum skilgreiningum,
að mörgum sjúklingum líður betur eftir með-
ferð. Þar að auki getur meðferð seinkað nokk-
uð fyrir útbreiðslu, þótt henni takist ekki að
minnka hnútana um 25%.
Vissulega er þetta ekki glæsilegur árangur,
en þó hafa læknar talið hann nægilega já-
kvæðan til þesss að réttlæta notkun lyfja, ef
24
Liggur beinast við að álykta að slíkar rann-
sóknastofur muni rísa í tengslum við þær
stofnanir, sem fyrir eru og fást fyrst og fremst
við greiningu illkynjaðra æxla. Það er því
mikið nauðsynjamál að heilbrigðisyfirvöld
landsins sjái til þess að slík aðstaða sé sköpuð
svo fljótt sem verða_má. Fordæmi Krabba-
meinsfélags íslands er þar verðugt til viðmið-
unar og eftirbreytni.
Heimildir:
Alma Þórarinsson, Ólafur Jensson og Ólafur
Bjarnason. Krabbameinsleit hjá konum með fjölda-
rannsókn. Læknablaðið (1966), 52. árg., bls. 145-
157.
Sömu höfundar. Masseunderspgelser med henblik
pá collum cancer. Nordisk Medicin (1967), 78. árg.,
bls. 1608-1611.
Sömu höfundar. Screening for Uterine Cancer in
Iceland. Acta bytologica (1969), 13. árg., bls. 304—
308.
Ólafur Bjarnason. Uterine barcinoma in Iceland.
Prentsmiðjan Hólar. Reykjavík 1963. (Doktorsrit).
annað bregst, fremur en að takmarka hana
við tilraunastarfsemi eina.
Á það má líka benda, að sjúklingum líður
yfirleitt betur andlega, ef eitthvað er reynt við
þá, þótt árangur kunni að vera lítill, heldur en
ef þeim er sagt að ekki sé gagn í neinu, sem
til er.
En á meðan árangur er ekki betri en raun
ber vitni, er þetta einnig eins konar tilrauna-
starfsemi, því margir eru að prófa sig áfram
með mismunandi notkun þeirra lyfja, sem
fyrir eru, aðrir að leita nýrra lyfja og enn aðrir
við rannsóknir á orsökum krabbameins. Þeg-
ar þær hafa fundizt, er oftast auðveldara að
finna lyf til lækninga, og hver veit nema unnt
verði að skapa ónæmi gegn þessum vágesti
með eins konar bólusetningu.
FRÉTTABRÉF UM HEILBRIGÐISMÁL