Heilbrigðismál - 01.07.1971, Blaðsíða 25
Jón Kr. Guðmundsson
Björg Jónsdóttir
Stórhöfðingleg
gjöf til
Krabbameinsfélags
Islands
SIR GEORGE . . .
jrh. af bls. 3
Oxford og Lundúnaspítalann. Ar;ð 1936 varði bann
doktorsritgerð um heilbrigðiseftirlit við Heilbrigð-
isfrœði- og heilbrigðiseftirlitsskólann í Lundúnum.
Hann réðst sem embxttislceknir til enska heil-
brigðismálaráðuneytisins árið 1939. Arið 1950 gerð-
ist hann aðstoðarlandlœknir, og landlœknir Eng-
lands 1960. Hann var aðlaðnr 1962.
Þau hjónin Björg Jónsdóttir og Jón Kr. Guð-
mundsson, Skólabraut 30, Akranesi gáfu Krabba-
meinsfélagi íslands nýlega kr. 345.000.00. Þetta
er veglegasta gjöf, sem Krabbameinsfélagi íslands
hefur hlotnazt. Félagið vottar þessum stórgjöfulu
hjónum innilegar þakkir fyrir þá miklu fórnfýsi,
sem þau hafa sýnt og óvenjulega næman skilning
þeirra á þeim málefnum, sem félagið berst fyrir.
Jafnframt óskar félagið þeim heilla og góðs gengis
um alla framtíð.
Bjarni Bjarnason
form. Krabbam.fél. íslands
Þróun allrar brezku heilbrigðisþjónustunnar hef-
ur hvílt mjög á berðum Sir George og hann hefur
verið fulltrúi brezka samveldisins í framkvcemda-
stjórn Alþjóðabeilbrigðismálastofnunarinnar og á
mörgum alþjóðaráðstefnum.
Krabbameinsfélag íslands þakkar þessum tigna
gesti fyrir komuna hingað til lands og þá sasmd,
sem hann sýndi félaginu í því sambandi.
Bjarni Bjarnason
FRÉTTABRÉF UM HEILBRIGÐISMÁL
25