Heilbrigðismál - 01.07.1971, Qupperneq 7

Heilbrigðismál - 01.07.1971, Qupperneq 7
flutzt til lungna, heila og fleiri líffæra, stíflað þar æðar og valdið þar lífshættulegum skemmdum og í nær öllum tilfellum alvarleg- um truflunum á heilsu sjúklingsins. Enn eitt af mörgu ótöldu, sem sannast hef- ur á seinni árum, er, að stórreykingamönnum hættir miklu meira til að fá blöðrukrabba en gerist meðal fólks, sem ekki reykir. Þá er einnig uppvíst að reykingar hafa ill áhrif á æðar nýrnanna og flýta oft fyrir alvarlegum nýrnasjúkdómum. Einn algengasti sjúkdómur, sem tóbaks- reykingar eiga þátt í að magna og eiga oft einar sök á, er langvinnt lungnakvef (bron- chitis chronica). Tæpast nokkur maður, sem reykir til lengdar sleppur við þennan sjúkdóm, þó verður hann misjafnlega alvarlegur eftir mótstöðuafli hvers og eins. Upp úr langvinn- um bronchitis kemur svo lungnaþemba. Af sífelldum hósta ofreynast og ofþenjast lung- un, teygjanleiki vefjanna minnkar og hverfur, skilveggir lungnablaðranna rifna og við það getur mikill fjöldi þeirra sameinazt í poka fyllta slími og óhroða sem erfitt er að ná upp, vegna þess að lungun eru orðin lömuð og bifháraþekja þeirra, sem sópar upp úr þeim öllu sem þar á ekki heima, sé hún heilbrigð, er einnig orðin lömuð af tóbaksreyknum er stöðugt streymir um bifhárin. Þegar búið er að reykja í eina mínútu eða skemur, hætta þau algerlega að starfa og eru lengi að jafna sig og gefast loks algerlega upp. Ollu þessu fylgir mikil mæði, fólkið er andstutt og á erfitt með að draga andann, oft einnig vegna þess að í kjölfar þessa alls kemur astma. Þá hefur sýnt sig að sígarettureykingar flýta fyrir myndun krabbameins í barkakýli, sérstaklega hjá karlmönnum. Áhrif reykinga á myndun skorpulifrar virð- ast ótvíræð og komi drykkjuskapur þar einnig til skjalanna magnast sjúkdómurinn miklu hraðar. FRÉTTABRÚF UM HEILBRIGÐISMÁL Þetta er langur og ófagur listi, en ef tími og þolinmæði ykkar leyfði gæti hann orðið miklu lengri. Ég hefi ekki minnzt á áhrif reykinga á taugakerfið, sem eru mikil og margvísleg, og ekki á áhrif tóbaksreyks á fólk sem hefst við í honum án þess að reykja. Rannsóknir í Englandi hafa leitt í ljós, að fjarvistir á vinnustöðum og í skólum vegna veikinda eru mörgum sinnum, sums staðar 10 sinnum, algengari hjá fólki sem reykir en hjá hinu, sem ekki reykir. Þó það kunni að taka 20-40 ár, að reykja í sig lungnakrabba, hafa rannsóknir seinni tíma sýnt, að það tekur margfalt skemmri tíma, að tileinka sér marga aðra sjúkdóma með reykingum, og það svo, að málið er farið að snerta unga fólkið óhugnanlega mikið. Þar kemur langvinna lungnakvefið - með öllum þeim afleiðingum sem ég hefi lýst, fyrst til skjalanna. Bæði fá þeir sem reykja það miklu frekar en hinir og yfirleitt læknast það verr og seinna. Hitt er þó alvarlegra að ein- kenni æðaskemmda koma ótrúlega fljótt í ljós hjá mörgu ungu fólki sem reykir mikið. Það er sagt að fyrstu einkenni æðakölk- unar geti hafizt um tvítugsaldur. í flestum tilfellum er hún þó ákaflega hægfara, en örv- ast með ólíkindum þegar mikið er reykt, sé hún byrjuð á annað borð. í Bandaríkjunum fer kransæðastífla ört vaxandi meðal kornungs fólks og læknarnir standa ráðþrota gagnvart henni, vegna þess að það heldur sínu striki og reykir hvað sem hver segir. Það er að verða algengur viðburð- ur þar, að rúmlega þrítugir menn detti skyndilega dauðir niður vegna kransæðastíflu. Þetta hefur þó orðið til þess að yfirgnæf- andi meirihluti lækna er hættur að reykja í Bandaríkjunum, og á síðastliðnu ári hættu fleiri menn að reykja í Bandaríkjunum en dæmi eru til áður. Við rannsóknir á hermönnum, sem féllu í 7

x

Heilbrigðismál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.